Hugh Hefner látinn

Hugh Hefner, stofnandi Playboy, er látinn 91 árs að aldri. Þetta var tilkynnt á Twittersíðu tímaritsins í nótt. Í tilkynningunni segir að Hefner hafi látist á friðsælan hátt á heimili sínu í Los Angeles í gær.

Bandaríska blaðið TMZ greinir frá því að Hefner hafi glímt við veikindi síðasta árið og þar af leiðandi lítið látið fyrir sér fara.

Hugh Hefner lætur eftir sig eiginkonuna Crystal Harris og fjögur börn, þau Christie, Cooper, David og Marston en hann giftist alls þrisvar sinnum.

Auglýsing

læk

Instagram