Ingunn gerir grín að ummælunum á Stöð 2 Sport: „Þegar maður er eina vegan manneskjan á vinnustaðnum“

Leikkonan Ingunn Lára Kristjánsdóttir sendi í gær frá sér myndband þar sem hún gerir grín að ummælum Jóns Halldórs Eðvaldssonar og Fannars Ólafssonar, sérfræðinga í þættinum Dominos Körfuboltakvöldi á Stöð 2 Sport. Ummælin vöktu mikla athygli í gær en þeir félagar virðast ekki vera miklir aðdáendur veganúar.

Sjá einnig: Jólamyndbönd Ingunnar Láru á Twitter slá í gegn: „Slæda inn í jólaandann like“

„Þegar maður er eina vegan manneskjan á vinnustaðnum,“ skrifar Ingunn við myndbandið sem er mjög fyndið. Þingkonan Una Hildardóttir er ein af þeim sem tengir við myndband Ingunnar en hún svarar henni og skrifar: „Þetta er líf mitt.“

Sjáðu myndbandið

Auglýsing

læk

Instagram