Íslenska bölvunin leggst á Slash: Eiginkonan vill skilnað

Gítarleikarinn Slash og Perla Hudson, eiginkona hans, eru að skilja eftir 13 ára hjónaband. Þetta kemur fram á bandarísku fréttasíðunni TMZ.

Bölvun virðist leggjast á frægt fólk sem kemur til Íslands. Slash er ekki sá eini sem skilur skömmu eftir að hafa komið til landsins en hann kom fram á tónleikum í Laugardalshöll á dögunum

Samkvæmt frétt TMZ flaug Perla óvænt til Havaí á dögunum ásamt sonum þeirra tveimur, London og Cash. Hún ku hafa sagt vinum þeirra hjóna að hjónabandi hennar og rokkarans sé lokið, þó hún sé ekki formlega búin að sækja um skilnað.

Fleiri hafa skilið eftir Íslandsdvöl.

Katie Holmes sótti um skilnað þegar eiginmaður hennar, Tom Cruise, var staddur hér á landi við tökur á kvikmyndinni Oblivion í júní 2012. Hjónin sáust síðast saman á mynd hér á landi þegar þau röltu um Þingholtin í Reykjavík.

Í október sama ár skildi Russell Crowe við Danielle Spencer, eiginkonu sína til níu ára, skömmu eftir að hann sneri heim frá Íslandi.

Auglýsing

læk

Instagram