Jón Gnarr heldur upp á 20 ára afmæli Ég var einu sinni nörd með sýningu í Eldborgarsal Hörpu

Jón Gnarr ætlar að fagna 20 ára afmæli uppistandsins Ég var einu sinni nörd með sýningu í Eldborgarsal Hörpu þann 6. október næstkomandi. Jón tilkynnti þetta á Twitter rétt í þessu.

Ég var einu sinni nörd var mögnuð uppistandssýning og á tímabili var varla til sá Íslendingur sem hafði ekki séð sýninguna. Jón rifjaði upp æskuár sín á sprenghlægilegan hátt og skoðaði jafnframt mannlífið með áherslu á Dani, flugstjóra og fleira fyndið.

Í tísti sínu segist Jón ætla að upplýsa meira síðar.

Auglýsing

læk

Instagram