Kendall Jenner auglýsir nærföt fyrir Calvin Klein: Þjófstartaði herferðinni sjálf á Instagram

Fyrirsætan Kendall Jenner birti í dag tvær myndir úr væntanlegri auglýsingaherferð Calvin Klein. Jenner auglýsir nærföt í auglýsingunum og fetar þar með í fótspor Kate Moss og auðvitað Justin Bieber.

Jenner er ein eftirsóttasta fyrirsæta heims um þessar mundir og hefur sýnt föt fyrir mörg af þekktustu tískumerkjum heims eins og t.d. Chanel. Hún fellur því ekki í skugga systra sinna, Kardashian-systranna.

Myndirnar sem hún setti á Instagram má sjá hér fyrir neðan.

View this post on Instagram

new #ad for @CalvinKlein underwear #MyCalvins

A post shared by Kendall (@kendalljenner) on

Auglýsing

læk

Instagram