Konur í stjórnmálum upplifa þukl, kynferðislegar athugasemdir og skilaboð á kvöldin frá karlkyns kollegum

Skilaboð frá kvæntum mönnum, áreiti, þukl, kynferðislegar athugasemdir og hótanir er á meðal þess sem konur í stjórnmálum á Íslandi hafa þurft að þola frá karlkyns kollegum sínum. Þetta kemur fram í tíu frásögnum sem fjölmiðlar fengu sendar í kvöld. Sjáðu sögurnar hér fyrir neðan.

Um 600 konur úr öllum stjórnmálaflokkum á Íslandi hafa skráð sig í lokaðan hóp á Facebook þar sem þær ræða kynbundið ofbeldi innan í íslenskum stjórnmálum. Konurnar hafa deilt yfir 100 sögum um valdbeitingu, kynbundið ofbeldi eða áreitni sem þær hafa upplifað í starfi sínu í stjórnmálum.

Konurnar hafa sent frá sér áskorun þar sem þess er krafist að karlar taki ábyrgð og að stjórnmálaflokkarnir taki af festu á málinu. „Þess er krafist að karlmenn innan flokkanna og flokkarnir sjálfir setji sér viðbragðsreglur og lofi konum að þær þurfi ekki að þegja og að þær muni fá stuðning,“ segir í yfirlýsingu frá hópnum.

Mikilvægt er að tryggja að raddir allra heyrist í stjórnmálum og að stjórnmálin endurspegli samfélagið.

Rúmlega 300 konur skrifa undir áskorunina og fjölmiðlar hafa fengið sendar tíu af sögunum 100 sem hafa birst í hópnum á Facebook. Í tilkynningunni kemur fram að allar sögurnar, ásamt endanlegum lista yfir þær konur sem undirrita yfirlýsinguna, verði birt á föstudag.

Sögurnar tíu

  1. Síðan ég byrjaði að starfa í pólitík hafa nokkrir menn úr stjórnmálaflokknum, og þá flestir giftir menn verið að senda mér skilaboð á kvöldin. Menn gera sér upp misjöfn tilefni til þess að hafa samband. Segjast vilja hjálpa mér ef mig vanti einhverja hjálp t.d. Ég velti því fyrir mér hvort að þeir vilji eiga inni hjá mér greiða eða hvort þeir séu að sýna að þeir séu valdameiri. Svo koma komment eins og: þú ferð nú í framboð er það ekki? Þú hefur allavega kinnbeinin í það. (já stelpur, þið sem eruð með kinnbein, drífið ykkur í framboð!) Svo hef ég líka fengið: þú ert nú með röddina í það, oh þessi rödd! Einn af þessum mönnum veit ég til að hefur verið að hafa samband við fleiri ungar konur í flokknum. Já ég er einhleyp, ung kona, en ég gekk ekki inn í stjórnmálastarf til þess að hafa ofan af fyrir giftum mönnum sem eru ef til vill orðnir leiðir á konunum sínum.
  2. Ég var einu sinni í Finnlandi á UNR sem er Ungmenna þing Norðurlandaráðs sumsé þvert á alla flokka þegar ég mæti í kjól og hælum fyrir dinnerinn segir hann NEI loksins sexy og sæt kona í vinstri pólitík, sama kvöld talaði hann við nokkra aðra stráka um þetta og í hvert skipti sem ég og sænsk vinkona mín gengum nálægt honum þá þurfti hann að kommenta á útlit okkar. Óþolandi og gerði mig alltof meðvitaða um sjálfa mig, áttum svo eftir heilan dag af þinginu og ég meikaði bara ekki að tjá mig daginn eftir á fundinum. 
Annars á svipuðum event sat ég með nokkrum ungum konum af öllum flokkum þar sem var farið yfir hvaða þingmenn væru mestu perrarnir á þessum þingum. 
Það er því miður þannig að flestar af ungu konunum sem taka þátt í þessum þingum hafa lent í perraköllum og sumar hafa bara mjög grófar og ógéðslegar sögur. Margar hafa fengið beina hótun um að pólitískur ferill þeirra yrði bara ekki að neinu ef þær væru ekki til í að borga fyrir það einhvernveginn
  3. Eftir umræðufund um málefni tengt Íraksstríðinu hélt hópurinn á bar og þar sem ég sat og ræddi við stjórnmálamenn tvo og einn vin þeirra um mál fundarins, fór vinurinn upp úr þurru að benda á hvað ég væri með fallega brjóstaskoru. Mér þótti þetta augljóslega óþægilegt og bað hann um að hætta þessu, en hann hélt áfram. Ég sat þarna klemmd á milli mannanna, enginn kom mér til varnar, ég fór. Hvað hafði eiginlega gerst, í miðri málefna umræðu var ég á svipstundu orðin hlutur í augum þriggja manna. Ég á fleiri svona sögur.
  4. Er komin fram sagan af karlkyns borgarstjóranum sem fór með gamanmál í fjölmennri veislu í Viðey á vegum borgarinnar? Þar fjallaði hann um ,,gangtegundir” kvenna. Þær hafa nefnilega bara tvenns konar gang: frekjugang og yfirgang. Þetta var á þessari öld notabene.
  5. Einn af upprennandi stjórnmálamönnunum er með margar „óstaðfestar“ sögur um áreitni gangvart ungum konum. Innan flokksins var gert mál úr þessu og reynt að láta hann sæta ábyrgð. Einhverjar konur gátu ekki hugsað sér að starfa með flokknum vegna þessa manns. Ekkert kom útúr málinu og maðurinn starfar í flokknum eins og ekkert hafi í skorist enda er svo rosalega dramatískt að hefta pólitískan feril ungs manns þrátt fyrir sögusagnir.
  6. Ég er nýkjörin formaður í nýju kjördæmisfélagi flokks. Öflugt félag strax, fundarherferðir, umræður og stuð…. ýmsir karlmenn meika mig ekki og eru sífellt að reyna að skrúfa mig niður.. .. nokkrir ganga lengra, niðrandi komment og niðurrif, örfáir en fleiri en tveir, káf og tilraunir til að komast lengra…. Engum tókst en hafði þau áhrif að mig langaði ekki að vera í forystu…þeirra….
  7. Ég get ekki talið upp öll þau skipti sem mér hefur beint og óbeint verið hótað nauðgun vegna skoðana minna. Ég hef engan áhuga á að hafa það eftir, en ég hef oft lesið um allskonar hluti sem ég hefði gott af og hvernig væri nú best að þagga niður í mér.
  8. Að taka þátt í prófkjöri var ávísun á að þurfa „þola“ kossa, þukl og faðmlög frá flokksMönnum, helst með bros á vör, (annars myndu Þeir ekki kjósa þig).
  9. Að taka þátt í prófkjöri var ávísun á að þurfa „þola“ kossa, þukl og faðmlög frá flokksMönnum, helst með bros á vör, (annars myndu Þeir ekki kjósa þig).
  10. Ég hef verið þátttakandi í pólitísku starfi allt frá menntaskólaárum. Ég hef oft orðið fyrir niðurlægjandi ummælum og framkomu sem beinlínis má rekja til þess að ég er kona, en ég hef ekki orðið fyrir kynferðislegri áreitni eða ofbeldi í störfum mínum í nefndum, í framboði, í borgarstjórn, á alþingi eða í ráðuneyti. Það er ástæðan fyrir því að ég skrifaði ekki undir áskorunina en sé svo að það hafa nokkrar gert, sem eins er ástatt um. En utan hins pólitíska vettvangs – bæði í vinnu og í skemmtanalífi hef ég lent í alls konar – eins og sagt er.

Áskorunina ásamt lista yfir konurnar sem skrifa undir hana má sjá hér fyrir neðan

Í skugga valdsins #metoo

  1. Kynferðisofbeldi og áreitni á sér stað í stjórnmálum rétt eins og annars staðar í samfélaginu.
  2. Meðfylgjandi eru frásagnir kvenna sem lýsa reynslu sinni.
  3. Það verður að verða breyting á. Við krefjumst þess að allir karlar taki ábyrgð, að allir stjórnmálaflokkar taki af festu á málinu, setji sér viðbragðsreglur og lofi konum að þær þurfi ekki að þegja meir því þær muni fá stuðning.

Undirskriftir:

  • Heiða Björg Hilmisdóttir, Varaformaður og borgarfulltrúi, Samfylkingin
  • Guðlaug Svala S Kristjánsdóttir, forseti bæjarstjórnar, Björt framtíð Hafnarfirði
  • Drífa Snædal, fyrrverandi framkvæmdastjóri Vg.
  • Sigríður Erla Sturludóttir, 2. Varaformaður Sambands ungra sjálfstæðismanna
  • Claudia Overesch, Alþýðufylkingin
  • Sanna Magdalena Mörtudóttir, varaformaður bráðabirgðarstjórnar Sósíalistaflokks Íslands
  • Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra. Viðreisn.
  • Silja Jóhannesdóttir – stjórnarmeðlimur í Kvennahreyfingu Samfylkingarinnar
  • Jóhanna María Sigmundsdóttir, fyrrum þingmaður Framsóknarflokksins
  • Nikólína Hildur Sveinsdóttir – alþjóðaritari Ungra jafnaðarmanna, ungliðahreyfingar Samfylkingarinnar.
  • Björt Ólafsdóttir. Ráðherra Björt Framtíð
  • Líneik Anna Sævarsdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins
  • Hildur Þórisdóttir, varabæjarfulltrúi L- lista á Seyðisfirði og formaður Samfylkingar á Seyðisfirði.
  • Þórey Vilhjalmsdottir, fyrrverandi formaður Landssambands Sjálfstæðiskvenna
  • Hulda Sigrún Guðmundsdóttir Bæjarfulltrúi Framsóknarflokksins Fjarðabyggð
  • Sabine Leskopf, varaborgarfulltrúi Samfylkingarinnar
  • Herdís Sigurjónsdóttir fyrrverandi bæjarfulltrúi Sjálfstæðismanna í Mosfellsbæ
  • Dagrún Ósk Jónsdóttir, ritari UVG
  • Sigrún Jónsdóttir fyrrverandi framkvæmdastýra Samfylkingarinnar og fyrrv. bæjarfulltrúi í Kópavogi
  • Margrét Erla Þórsdóttir, viðburðastýra UVG
  • Sigrún Skaftadóttir fyrrum Feminist Network Coordinator fyrir Young European Socialist, fyrrum alþjóðaritari Ungra Jafnaðarmanna og núverandi stjórnarmaður í kvennahreyfinu Samfylkingarinnar.
  • Sólveig Skaftadóttir -stjórnarmeðlimur í Kvennahreyfingu Samfylkingarinnar
  • Líf Magneudóttir – borgarfulltrúi vinstri grænna og forseti borgarstjórnar
  • Margrét Lind Ólafsdóttir – bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar á Seltjarnarnesi og formaður framkvæmdastjórnar Samfylkingarinnar
  • Elín Margrét Böðvarsdóttir, Sjálfstæðisflokkurinn
  • Kristbjörg Þórisdóttir varaþingmaður Framsóknarflokksins.
  • Sóley Tómasdóttir, fyrrverandi borgarfulltrúi Vinstri grænna
  • Helga Vala Helgadóttir, þingman Samfylkingarinnar.
  • Albertína Friðbjörg Elíasdóttir, þingmaður Samfylkingarinnar
  • Þórlaug Borg Ágústdóttir, ráðsfulltrúi og fyrrverandi formaður Pírata í RVK
  • Eva Einarsdottir, varaborgarfulltrúi og fv varaþingkona, Björt Framtíð
  • Sólveig Anna Jónsdóttir, Sósíalistaflokki Íslands
  • Aðalheiður Björt Unnarsdóttir, varabæjarfulltrúi Framsóknar, Fljótsdalshéraði
  • Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, fyrrrv. þingkona Samfylkingarinnar
  • Laufey Líndal Ólafsdóttir, meðlimur í bráðabirgðastjórn Sósíalistaflokks Íslands.
  • Guðrún Arna Kristjánsdóttir, fyrrverandi varabæjarfulltrúi Garðabæ, Samfylkingin
  • Pálína Margeirsdóttir bæjarfulltrúi Framsóknar, Fjarðabyggð.
  • Auður Lilja Erlingsdóttir. VG
  • Margrét M. Norðdahl, varaborgarfulltrúi í Reykjavík, Samfylkingin
  • Dagbjört Pálsdóttir, bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar á Akureyri
  • Halldóra Mogensen – þingkona Pírata
  • Eva Pandora Baldursdóttir, fráfarandi þingmaður og oddviti Pírata í Norðvesturkjördæmi.
  • Svandís Svavarsdóttir formaður þingflokks VG
  • Eydís Ásbjörnsdóttir, bæjarfulltrúi Fjarðalistans í Fjarðabyggð.
  • Ragnheiður Hergeirsdóttir f.v. bæjarstjóri og bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar í Árborg.
  • Bryndís Haralds þingkona og bæjarfulltrúi, Sjálfstæðisflokkurinn.
  • Arna Ír Gunnarsdóttir bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar í Árborg.
  • Þórhildur Hlín ungir jafnaðarmenn
  • Halla Signý Kristjánsdóttir þingmaður Framsóknarflokksins
  • Sóley Björk Stefánsdóttir, bæjarfulltrúi á Akureyri, Vinstri græn
  • Sandra Rán Ásgrímsdóttir, formaður Sambands ungra Framsóknarmanna
  • Ída Finnbogadóttir, varaformaður Ungra jafnaðarmanna í Reykjavík
  • Kristín Elfa Guðnadóttir, ráðsfulltrúi Pírata hjá Reykjavíkurborg.
  • Rósanna Andrésdóttir, Samfylkingunni
  • Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, þinmaður, ritari og starfandi varaformaður Sjálfstæðisflokkurinn
  • Eva H. Baldursdóttir, varaborgarfulltrúi samfylkingarinnar og formaður félags frjálslyndra jafnaðarmanna
  • Esther Ösp Gunnarsdóttir, bæjarfulltrúi Fjarðalistans í Fjarðabyggð
  • Anna Sigríður Guðnadóttir, bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar í Mosfellsbæ.
  • Ingibjörg Þórðardóttir, varaþingmaður og alls konar, VG
  • Sigrún Blöndal bæjarfulltrúi L-listans á Fljótsdalshéraði og formaður Sambands sveitarfélaga á Austurlandi
  • Arna Lára Jónsdóttir, bæjarfulltrúi Í-listans í Ísafjarðarbæ og formaður bæjarráðs
  • Katla Hólm Þórhildardóttir 
Píratar
  • Þóra Geirlaug Bjartmarsdóttir, Vinstri Græn, fyrrverandi formaður UVG
  • Maria Hjalmarsdottir varaþingmaður samfylkingarinnar í Norðaustur kjördæmi
  • Margrèt Gauja Magnúsdóttir. Bæjarfulltrúi í Hafnarfirði. Samfylkingin.
  • Sigurþóra Bergsdóttir, varabæjarfulltrúi Samfylkingarinnar á Seltjarnarnesi
  • Áslaug Hulda Jónsdóttir. Formaður bæjarráðs Garðabæjar. Sjálfstæðisflokkur.
  • Hjördís Helga Seljan Þóroddsdóttir varabæjarfulltrúi Fjarðalistans í Fjarðabyggð
  • Inga Björk Margrétar Bjarnadóttir, Samfylkingunni
  • Silja Snædal Drífudóttir, fyrrverandi alþjóðaritari UVG og varamaður í stjórn VG í Reykjavík
  • Erla Björg Guðmundsdóttir, Samfylkingunni
  • Alma Lisa Johannsdottir . VG
  • Marta Sigurðardóttir. Bæjarfulltrúi í Grindavík. Samfylkingin.
  • Tanja Rún Kristmannsdóttir, varaformaður Sambands ungra framsóknarmanna
  • Elín Oddný Sigurðardóttir, varaborgarfulltrúi og ritari VG
  • Ingibjörg Ólöf Isaksen, bæjarfulltrúi á Akureyri – Framsóknarflokkurinn
  • Oddný Sturludóttir, fyrrverandi borgarfulltrúi Samfylkingarinnar
  • Theodóra S. Þorsteinsdóttir – formaður bæjarráðs Kópavogsbæjar og fyrrum þingmaður Bjartrar framtíðar.
  • Ingibjörg Ingvadóttir, Framsóknarflokki
  • Eydís Blöndal, önnur varaþingkona VG í Reykjavík suður.
  • Nichole Leigh Mosty Formaður hverfisráðs Breiðholts og fyrrum þingmaður Bjartar framtíðar
  • Halla Gunnarsdóttir, varaþingmaður VG
  • Kristín Sævarsdóttir varabæjarfulltrúi Samfylkingarinnar í Kópavogi
  • Ásta Hlín Magnúsdóttir, fyrrverandi formaður Sambands ungra framsóknarmanna.
  • Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, Kvennaframboði, Kvennalista, Reykjavíkurlista og Samfylkingu
  • Iðunn Garðarsdóttir, Vinstri græn.
  • Dóra Sif Tynes, fyrrverandi varaþingmaður Viðreisnar
  • Andrea Hjálmsdóttir fyrrverandi bæjarfulltrúi VG á Akureyri
  • Sigurborg Ósk Haraldsdóttir – ráðsfulltrúi Pírata hjá Reykjavíkurborg
  • Margrét Tryggvadóttir varaþingmaður Samfylkingarinnar.
  • Jónína Erna Arnardóttir, sveitarstjórnarfulltrúi fyrir Sjálfstæðisflokkinn
  • Guðrún Ágústsdóttir, aðal-eða varaborgarfulltrúi frá 1978-1999. Forseti borgarstjórnar frá 1994-1999. VG
  • Jóna Sólveig Elínardóttir, varaformaður Viðreisnar.
  • Guðrún Jóna Jónsdóttir, fyrrum forman Ungra jafnaðarmanna
  • Sigríður Huld Jónsdóttir, bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar á Akureyri.
  • Hildur Friðriksdóttir, VG.
  • Sigríður Pétursdóttir VG, formaður hverfisráðs Kjalarness
  • Una Hildardóttir, gjaldkeri og 1 varaþingmaður VG í SV
  • Gyða Dröfn Hjaltadóttir, formaður Ungra vinstri grænna
  • Ása Elín Helgadóttir, framkvæmdarstjórn UJ, Samfylkingin.
  • Marzibil S. Sæmundardóttir fyrrverandi varaborgarfulltrúi S
  • Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir fyrrverandi borgarfulltrúi
Sjálfstæðisflokksins
  • Dóra Magnúsdóttir, varaborgarfulltrúi í Rvk. Samfylking
  • Sema Erla Serdar. Fyrrv. formaður framkvæmdastjórnar Samfylkingarinnar og fyrrv. formaður Samfylkingarinnar í Kópavogi.
  • Gerður Jónsdóttir stofnfélagi í Miðflokknum. Fyrrverandi formaður Landssambands framsóknarkvenna, fyrrverandi bæjarfulltrúi Framsóknar á Akureyri
  • Adda María Jóhannsdóttir bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar í Hafnarfirði
  • Dóra Björt Guðjónsdóttir, fyrrverandi formaður Ungra Pírata, 2. varaþingmaður Pírata
  • Kristín María Birgisdóttir formaður bæjarráðs Grindavíkurbæjar, Lista Grindvíkinga
  • Anna Lísa Björnsdóttir VG
  • Sanna Magdalena Mörtudóttir, varaformaður bráðabirgðarstjórnar Sósíalistaflokks Íslands
  • Gréta Ingþórsdóttir, fyrrverandi framkvæmdastjóri þingflokks Sjálfstæðisflokksins
  • Ingibjörg Ólöf Vilhjálmsdóttir, Framsóknarflokki
  • Ásta Guðrún Helgadóttir, fyrrverandi þingmaður pírata
  • Inga Auðbjörg Straumland, fyrrverandi varaformaður ungra jafnaðarmanna
  • Svala Jónsdóttir, varamaður í nefnd fyrir VG
  • Freyja Steingrímsdóttir, stjórnmálaráðgjafi og meðlimur í Samfylkingunni
  • Valgerður Bláklukka Fjölnisdóttir, varaformaður UVG
  • Helga Dögg Björgvinsdóttir, fyrrverandi formaður Landssambands Sjálfstæðiskvenna
  • Anna Kolbrún Árnadóttir, þingmaður Miðflokksins
  • Guðný Hildur Magnúsdóttir, VG, fyrrverandi formaður VG á Vestfjörðum og núverandi stjórnarkona VG á Vestfjörðum
  • Jóna Björg Sætran, 4 á lista Framsóknar- og flugvallarvina, númer 5 á lista Framsóknarflokksins til alþingiskosinga 2017
  • Birna Hafstein, Viðreisn
  • Steinunn Ýr Einarsdóttir, formaður Kvennahreyfingar Samfylkingarinnar
  • Þórhildur Sunna Ævarsdóttir þingmaður Pírata
  • Bryndís Friðgeirsdóttir fyrrverandi bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar í Ísafjarðarbæ, fv. formaður Kvennahreyfingar Samfylkingarinnar og fv. formaður Samfylkingarinnar á N Vestfjörðum
  • Rannveig Ernudóttir fyrrum ritari Pírata og núverandi vararitari Pírata, frambjóðandi með Pírötum 2017
  • Andrea Ósk Sigurbjörnsdóttir, innanstarfsfulltrúi UVG
  • Greta Björg Egilsdóttir varaborgarfulltrúi Framsóknar og flugvallarvina og nú síðast á lista Miðflokksins
  • Elín Ýr Arnar Hafdísardóttir fyrrv formaður framkvæmdaráðs Pírata og núverandi formaður Pírata í Hafnarfirði.
  • Guðrún Ágústa þórdísardóttir fyrrverandi varaþingmaður Pírata
  • Álfheiður Eymarsdóttir kafteinn Pírata á Suðurlandi og varaþingmaður.
  • Úlfhildur Rögnvaldsdóttir, Stofnfélagi í Miðflokknum, áður í Framsókn.
  • Ása Richardsdóttir Samfylkingin ,bæjarfulltrúi Kópavogi/ varaforseti bæjarstjórnar
  • Ása Lind Finnbogadóttir fyrrverandi frambjóðandi Dögunar til Alþingis en er skráð bæði í Pírata og Samfylkingu
  • Þorgerður María Halldórsdóttir fv Sjálfstæðisflokknum
  • Margrét Kristín Helgadóttir, Fyrrverandi bæjarfulltrúi Bjartrar framtíðar í bæjarstjórn Akureyrar.
  • Guðrun Erla Geirsdottir ein af stofnendum Kvennaframboðsins og Samfylkingarinnar og fyrverandi varaborgarfulltr
  • Björk Vilhelmsdóttir fyrrverandi borgarfulltrúi Samfylkingarinnar og Reykjavíkurlistans
  • Þórhalla Rein Aðalgeirsdóttir, fyrrv. formaður UJ í Gbæ og Álftanesi, fyrrv. stjórn Röskvu.
  • Halldóra Jónasdóttir, einkaþjálfari og flugkona, virk Pírata og frambjóðandi í SV fyrir Pírata 2017.
  • Hanna Bjartmars Arnardóttir, fyrrverandi bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar
  • Þorgerður Jóhannesdóttir, skrifstofustjóri Samfylkingarinnar og fyrrverandi bæjarfulltrúi
  • Silja Dōgg Baldursdóttir bæjarfulltrúi á Akureyri L- listinn
  • Sigrún H Pálsdóttir, bæjarfulltrúi Íbúahreyfingarinnar
  • María Pétursdóttir, Sósíalistaflokkur Íslands
  • Ingibjörg Stefánsdóttir, í stjórn fulltrúaráðs Samfylkingarinnar í Reykjavík, fv, varaformaður Samfylkingarfélagsins í Reykjavík og varamaður í framkvæmdastjórn Samfylkingarinnar. Fyrrverandi starfskona Kvennalistans.
  • Sigríður Sigmarsdóttir Sjálfstæðisflokkur
  • Anna Margrét Guðjónsdóttir, fv. varaþingkona Samfylkingarinnar, í stjórn fulltrúaráðs Samfylkingarinnar í Reykjavík.
  • Sigrún Ríkharðsdóttir, framkvæmdastjórn Samfylkingarinnar.
  • Hólmfríður Bjarnadóttir Pírati
  • Unnur Tryggvadóttir Flóvenz, fv. varabæjarfulltrúi Samfylkingarinnar í Kópavogi og fv. málefnastýra Ungra jafnaðarmanna.
  • Sigríður M Guðjónsdóttir Bæjarfullltrúi Fjarðslistans í Fjarðabyggð
  • Sigríður Gísladóttir, formaður VG á Vestfjörðum.
  • Eva Dögg Guðmundsdóttir, stjórnarmeðlimur í Stjórn Samfylkingarfélags Reykjavíkur
  • Ragnheiður Elín Árnadóttir, fv. þingmaður og ráðherra Sjálfstæðisflokksins
  • Steinunn Þóra Árnadóttir, þingkona VG
  • Steinunn Rögnvaldsdóttir, fyrrverandi formaður Ungra vinstri grænna.
  • Geirlaug Jóhannsdóttir, sveitarstjórnarfulltrúi í Borgarbyggð, Samfylking
  • Kristín Soffía Jónsdóttir borgarfulltrúi Samfylkingarinnar
  • Guðrún Íris Valsdóttir
Fyrrverandi bæjarfulltrúi Fjarðalistans í Fjarðabyggð
  • Bryndís Sigurðardóttir, fyrsti formaður Samfylkingar í Hveragerði og á lista Samfylkingar í Suðurkjördæmi fyrir nokkrum kosningum
  • Hanna Katrín Friðriksson, þingflokksformaður Viðreisnar
  • Guðrún Dóra Brynjólfsdóttir Sjálfstæðisflokkurinn
  • Hanna Birna Kristjánsdóttir, fv ráðherra og borgarstjóri Sjálfstæðisflokksins
  • Ásta Kristín Sigurjónsdóttir , fv.bæjarfulltrúi og fv.varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins
  • Diljá Ámundadóttir, fv. varaborgarfulltrúi BF.
  • Sigrún Björk Jakobsdóttir, Sjálfstæðisflokki. Fv.Bæjarfulltrúi og Bæjarstjóri á Akureyri.
  • Bryndís Gunnlaugsdóttir
fv. bæjarfulltrúi, fv. formaður SUF og fv. varaþingmaður Framsóknar
  • Ingibjörg Óðinsdóttir, fyrrv. varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins.
  • Elva Dögg Ásud. Kristindóttir oddviti VG í Hafnarfirði og bæjarfulltrúi í bæjarstjórn
  • Borghildur Sölvey Sturludóttir varabæjarfulltrúi BF í Hafnarfirði
  • Þorgerður Anna Arnardóttir Sjálfstæðisflokkurin
  • Valgerður Halldórsdóttir fyrrverandi bæjarfulltrúi í Hafnarfirði – Samfylking
  • Vilborg Oddsdóttir Samfylking 5 sæti suður Reykjavík fyrir síðustu Alþingiskosningar
  • Jónína Sigurðardóttir, Stjórnarmaður í Heimdalli og oddviti Vöku félags lýðræðissinnaðra stúdenta á Menntavísindasviði – Sjálfstæðisflokkurinn
  • Tinna Dögg Guðlaugsdóttir, varaformaður Sjálfstæðisfélags Kópavogs og fv. Varaþingmaður
  • Stefanía Sigurðardóttir, framkvæmdastjóri þingflokks Viðreisnar
  • Katrín Ósk, varaþingmaður Sjálfstæðisflokkins í SV, varaformaður Stefnis félag ungra í Hafnarfirði og oddviti Vöku, félags lýðræðissinnaðra stúdenta við HÍ.
  • Jenný Heiða Zalewski, varaformaður Kvennahreyfingar Samfylkingarinnar.
  • Ásrún Birgisdóttir, ritari Félags sjálfstæðismanna í Nes- og Melahverfi í Reykjavíl
  • María Júlía Rúnarsdóttir, Framsókn
  • Silja Dögg Gunnarsdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins
  • Margrét Gísladóttir, fyrrv. aðstoðarmaður utanríkisráðherra og fyrrv. ráðgjafi forsætisráðherra Framsókn
  • Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir. Varaþingkona Framsóknar og stjórnarmeðlimur SUF
  • Erla Hlynsdóttir, framkvæmdastjóri Pírata
  • Dagbjört Hákonardóttir, fv. gjaldkeri og meðstjórnandi Ungra Jafnaðarmanna, Röskvukona og fv. formaður Ungra Evrópusinna
  • Inga Sæland þingmaður og formaður Flokks fólksins
  • Ásrún Helga Kristinsdóttir bæjarfulltrúi Í Grindavík fyrir Framsóknarflokkinn
  • Eva Margrét Kristinsdóttir, fv. varabæjarfulltrúi og fv. formaður ungra jafnaðarmanna á Seltjarnarnesi. Samfylking.
  • Ásgerður K. Gylfadóttir, bæjarfulltrúi í Sveitarfélaginu Hornafirði og varaþingmaður fyrir Framsóknarflokkinn í Suðurkjördæmi.
  • Guðrún Katrín fyrrverandi flokkstjórnarfulltrúi Samfylkingarinnar og fyrrverandi bæjarstjótnarmaður á Seyðisfirði fyrir Samfylkinguna.
  • Guðveig Eygloardottir oddviti Framsóknar í sveitarstjórn Borgarbyggðar.
  • Lára Björg Björnsdóttir, VG.
  • Sæunn Stefánsdóttir, fyrrum ritari og þingmaður Framsóknarflokksins
  • Dagný Jónsdóttir, fv. þingmaður Framsóknarflokksins
  • Anna Björg Níelsdóttir bæjarfulltrúi í Sveitarfélaginu Ölfusi fyrir Framfarasinna
  • Inga María Hlíðar Thorsteinson, Sjálfstæðisflokkurinn
  • Sunna Rós Víðisdóttir, fv. formaður framkvæmdaráðs Pírata- Píratar
  • Elsa Kristjánsdóttir, gjaldkeri Pírata
  • Ragnhildur Vigfúsdóttir Kvennalista og síðar Samfylkingin
  • Inga Þyri Kjartansdóttir fv framkvæmdastjóri Landssambands Framsóknarkvenna, í miðstjórn og varamaður í kjördæmisráði Framsóknarflokks í SV.
  • Bryndís Ísfold Hlöðversdóttir, fv. Varaborgafulltrúi Samfylkingarinnar
  • Fríða Rós Valdimarsdóttir, fyrrverandi frambjóðandi Kvennalistans.
  • Kolbrún Birna Hallgrímsdóttir Bachmann, Samfylkingin
  • Halla Sigríður Steinólfsdóttir varaoddviti í sveitarstjórn Dalabyggðar og í stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga
  • Hafdís Gunnarsdóttir, varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins í NV-kjördæmi og formaður fulltrúaráðs Sjálfstæðisflokksins í Ísafjarðarbæ.
  • Sif Huld Albertsdóttir, varabæjarfulltrúi fyrir Sjálfstæðisflokkinn í Ísafjarðarbæ.
  • Birna Lárusdóttir, Sjálfstæðisflokki. Fyrrverandi bæjarfulltrúi og forseti bæjarstjórnar Ísafjarðarbæjar, fyrrverandi varaþingmaður í NV-kjördæmi.
  • Hildur Knútsdóttir, fyrrv. varaþingmaður VG.
  • Hrefna Guðmundsdóttir, Björt framtíð, á lista bæði í sveitastjórnar- og alþingiskosningum
  • Sara Dögg Svanhildardóttir formaður jafnréttisnefndar Viðreisnar
  • Þórunn Egilsdóttir þingmaður Framsóknarflokksins
  • Sara Oskarsson varaþingmaður Pírata.
  • Ásta Dís Guðjóns, formaður Sjálfsbjargar á höfuðborgarsvæðinu.
Var í 2 sæti Rvk-N fyrir Dögun 2016 og í stjórn Dögunar.
Sit í bráðabirgðastjórn Sósíalistaflokksins.
  • Jóhanna Vigdís Guðmundsdóttir, varaþingmaður Samfylkingarinnar í Reykjavík suður.
  • Karen Elísabet Halldórsdóttir, bæjarfulltrúi og varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins.
  • Jasmina Crnac, Oddviti Bjarta framtíðar í Suðurkjördæmi. Einnig fulltrúi velferðarnefndar í Reykjanesbæ fyrir A-lista
  • Sigríður Elva Konráðsdóttir, sveitarstjórnarfulltrúi
  • Guðrún Inga Ingólfsdottir, hagfræðingur og fyrrverandi varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins
  • Oddný G. Harðardóttir þingmaður Samfylkingarinnar.
  • Una María Óskarsdóttir uppeldis-, menntunar- og lýðheilsufræðingur, 1. varaþingmaður Miðflokksins í Suðvesturkjördæmi.
  • Brynhildur S. Björnsdóttir, Björt framtíð
  • Halldóra Baldursdóttir, Fulltrúi gæðamála OR, Miðflokkurinn.
  • Ólína Freysteinsdóttir, Fjölskyldufræðingur, Samfylkingin
  • Drífa Sigfúsdóttir, MS í mannauðsstjórnun, f.v. forseti bæjarstjórnar/varabæjarstjóri og varamaður á Alþingi, stjórn LFK, framkvæmdastjórn o.fl. Framsóknarflokki
  • Anna Pála Sverrisdóttir, fyrrum formaður Ungra jafnaðarmanna og fyrrum varaþingmaður Samfylkingarinnar.
  • Anna Lóa Ólafsdóttir bæjarstjórn RNB 2014-15.
  • Jónína Holm bæjarfulltrúi N listans sem er þverpólitískt framboð í Garði.
  • Sólveig Guðjónsdóttir 3 sæti miðflokkur suðurkjör
  • Birna Þórarinsdóttir, framkvæmdastjóri Viðreisnar
  • Auður Alfa Ólafsdóttir, framkvæmdastjórn Samfylkingarinnar
  • Hildur Karen Sveinbjarnardóttir, Sjálfstæðisflokki
  • Anna Bara Ólafsdóttir 
Framkvæmdarstjori Miðflokkurinn
  • Sunna Snædal, varakona í Velferðarráði, VG
  • Valgerður Sveinsdóttir, varaþingmaður Miðflokksins
  • Ásthildur Sturludóttir, bæjarstjóri og formaður kjördæmisráðs Sjálfstæðisflokksins í NV kjördæmi.
  • Áslaug Friðriksdóttir borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksin
  • Laufey Elísabet Gissurardóttir, fjölskyldunefnd á Seltjarnarnesi, SamfylkinOktavía Hrund Jónsdóttir, 1. varaþingkona Pírata suðvestur og stjórnarformaður Evrópskra Pírata
  • Sigríður María Egilsdóttir, varaþingmaður og stjórnarmeðlimur Viðreisnar.
  • Lovísa Rósa Bjarnadóttir forseti bæjarstjórnar á Hornafirði, Sjálfstæðisflokki
  • Þorbjörg Þorvaldsdóttir, Samfylkingunni
  • Þóra Magnea Magnúsdóttir stjórnarmaður í VG, Reykjavík.
  • Ásdís Bjarnadóttir 4 sæti Miðfloknum Suðurkjördæmi.
  • Ragnheiður Ríkharðsdóttir fv. þingmaður og þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins
  • Þóra Kristín Ásgeirsdóttir, ritari stjórnar VG í Reykjavík.
  • Margrét K. Sverrisdóttir fv. varaþingmaður Frjálslynda flokks og síðar borgarfulltrúi Samfylkingar.
  • Herdís Hjörleifsdóttir, 7 sæti í Miðflokknum í Suðurkjördæmi
  • Sigríður Sólveig, grasrótin, Sjálfstæðisflokkurinn
  • Nanný Arna Guðmundsdóttir forseti bæjarstjórnar Ísafjarðarbæjar
  • Jórunn Einarsdóttir fyrrum bæjarfulltrúi og varaþingmaður VG
  • Eva Magnúsdóttir, fyrrverandi formaður fræðslunefndar í Mosfellsbæ og fyrrverandi varabæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins.
  • Guðfinna Jóh. Guðmundsdóttir borgarfulltrúi Framsóknar og flugvallarvina
  • Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir aðstoðarmaður félags-og jafnréttismálaráðherra og varaþingmaður Viðreisna
  • Jóna Björg Hlöðversdóttir VG
  • Sigríður Indriðadóttir, forseti bæjarstjórnar á Akranesi, Sjálfstæðisflokki
  • Rakel Óskarsdóttir, bæjarfulltrúi Akranesi, Sjálfstæðisflokki
  • Anna Aurora Waage Óskarsdóttir Framkvæmtastjóri og í stjórn Framsóknarflokksins í Mosfellsbæ.
  • Bergljót Kristinsdóttir, formaður Samfylkingarinnar í Kópavogi og varabæjarfulltrúi.
  • Hildur Helga Gísladóttir formaður Kjördæmissambands framsóknarmanna í Suðvesturkjördæmi
  • Lilja Alfreðsdóttir, alþingiskona og varaformaður Framsóknarflokksins
  • Linda Hrönn Þórisdóttir, formaður Landssambands Framsóknarkvenna
  • Bjarnveig Ingvadóttir, Framsóknarflokkurinn, ritari Landsambands Framsóknarkvenna
  • Rakel Dögg Óskarsdóttir Framsókn og flugvallarvinir.
  • Elín Jóhannsdóttir, fyrrverandi varaþingmaður Framsóknarflokksins
  • Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, þingmaður og ráðherra Sjálfstæðisflokksins.
  • Vala Pálsdóttir, formaður Landssambands sjálfstæðiskvenna
  • Elín Jónsdóttir, formaður sjálfstæðisfélagsins í Árbæ, selás og ártúni og meðlimur í stjórn varðar
  • Hreindís Ylva Garðarsd. Holm, VG
  • Eygló Björg Jóhannsdóttir, formaður kjördæmasambands framsóknarmanna í Norðausturkjördæmi.
  • Gyða R. Stefánsdóttir, Sjálfstæðisflokkurinn
  • Gerður Pálsdóttir fjölskyldunefnd Mosfellsbæjar, Samfylkingin
  • Vilborg Þ. Guðbjartsdóttir bæjarfulltrúi á Akranesi, Björt framtíð.
  • Aníta Rut Hilmarsdóttir, Sjálfstæðisflokkurinn
  • Bryndís Bjarnadóttir, Sjálfstæðisflokkurinn
  • Margrét Pétursdóttir stjórnarkona í VG
  • Þórunn Sveinbjarnardóttir, fv. þingkona Samfylkingar
  • Steinunn Valdís Óskarsdóttir, fyrrverandi Borgarstjóri og þingkona Samfylkingar.
  • Silja Rán Arnarsdóttir, Sjálfstæðisflokkurinn
  • Erla Guðrún Gísladóttir. VG
  • Andrea Eyland Sóleyjar- og Björgvinsdóttir fyrrverandi kosningastýra í Reykjavík. Samfylkingin.
  • Margrét Frímann, Samfylking
  • Björg Eva Erlendsdóttir,  Framkvæmdastjóri VG og fyrrv. stjórnarfulltrúi hér og þar
  • Andrea Gunnarsdóttir, stjórnarmeðlimur Sambands ungra Sjálfstæðismanna.
  • Eydís Bára Jóhannsdóttir, formaður Framsóknarfélags Húnaþings vestra.
  • Lilja Hrund Ava Lúðvíksdóttir, stjórn ungra sjálfstæðismanna í Reykjavík.
  • Hildur Sverrisdóttir, varaþingmaður, Sjálfstæðisflokki
  • María Grétarsdóttir,  bæjarfulltrúi, FÓLKIÐ- í bænum, Garðabæ
  • Unnur Brá Konráðsdóttir, fv. forseti Alþingis og varaþingmaður, Sjálfstæðisflokki
  • Hildur Margrétardóttir, formaður Íbúahreyfingarinnar í Mosfellsbæ og 2. varabæjarfulltrúi
  • Hólmfríður Garðarsdóttir, aðgerðarsinni víða, m.a. í Samfylkingu og með Kvennalista
  • Svanhildur Hólm Valsdóttir, aðstoðarmaður forsætisráðherra, Sjálfstæðisflokki
  • Aldís Hafsteinsdóttir, bæjarstjóri í Hveragerði og formaður sveitarstjórnarráðs Sjálfstæðisflokksins.
  • Bergþóra Benediktsdóttir, framkvæmdastjóri þingflokks, VG.
  • Nanna Kristín Tryggvadóttir, varamaður í miðstjórn, Sjálfstæðisflokki
  • Ásta Hlín Magnúsdóttir, fyrrverandi formaður Sambands ungra framsóknarmanna.
  • Guðrún M. Ó. Steinunnardóttir. Fyrrverandi bæjarfulltrúi Fjarðalistans í Fjarðabyggð.
Auglýsing

læk

Instagram