Lára beit saman varirnar þegar hún sá börn kaupa orkudrykki: Útskýrir áhrif koffíns á heilsu barna

Lára G. Sigurðardóttir læknir hvetur foreldra til að grípa inn í áður en koffínneysla barna verði að vana. Hún segist hafa fundið koffíndrykki í fórum barns síns og útskýrir í Bakþönkum Fréttablaðsins í dag hvaða áhrif koffíndrykkir geta haft á börn.

Lára segir frá búðarferð um kvöldmatarleyti þar sem hún segist hafa séð tvö börn, um 12 ára gömul kaupa sér orkudrykki. „Afgreiðsludaman gerir enga athugasemd við innkaupin,“ segir hún í pistlinum.

Ég er við það að segja eitthvað því ein lítil dós of orkudrykk inniheldur rúmlega 100 mg af koffíni og á henni stendur að drykkurinn sé ekki ætlaður börnum. Ég bít saman varirnar og held aftur af mér, hugsandi hvort kaupin séu með samþykki foreldranna.

Lára segir að ástæðan fyrir því að börn eigi ekki að neyta koffíns sé meðal annars sú að koffín sé vanabindandi og örvandi efni. „Sem dæmi þá safnast boðefnið adenósín upp í heilanum þegar við vökum og veldur syfju,“ segir hún.

„Koffín ýtir adenósíni til hliðar og hindrar að við verðum þreytt. Það lengir þannig sofnunartíma og styttir heildarsvefntíma, þar með talið mikilvægasta svefnstigið, djúpsvefninn, þegar meðal annars vaxtarhormón verða til.“

Hún bendir á að þegar barn innbyrðir koffín seinnipart dags sé líklegt að það trufli svefn þess þar sem koffín sé lengi að fara úr líkamanum. „Barn sem fær koffín klukkan sex um kvöld er enn með helming þess í líkamanum um miðnætti. Auk þess að trufla svefn getur einn orkudrykkur aukið blóðþrýsting hjá barni, valdið hröðum hjartslætti, höfuðverk, einbeitingarleysi og óróleika,“ segir hún í pistlinum.

„Tölur sýna að koffínneysla barna hefur aukist undanfarin ár enda orðið algengt að koffíni sé bætt í drykki eins og gos, íste, sykraða drykki með kaffibragði og orkudrykki. Sjálf hef ég fundið koffín­drykki í fórum míns barns. Eftir að hafa útskýrt hvað koffín gerir, þá gætir hann þess nú að velja drykki án koffíns. Við foreldrarnir getum sem betur fer gripið inn í áður en neyslan verður að vana.“

Smelltu hér til að lesa pistil Láru.

Auglýsing

læk

Instagram