Lífsleikni Gillz gefin á netinu

„Ég hef ákveðið að gefa þjóðinni smá hressleika í jólagjöf. Eins og alþjóð veit var Lífsleikni ein vinsælasta kvikmyndin á árinu 2014 og því hef ég ákeðið að gefa íslensku þjóðinni myndina mína,“ þetta segir Egill Einarsson í tilkynningu.

Hægt er að sækja myndina eða horfa á hana hér.

Egill tilkynnti þetta í útvarpsþættinum FM95Blö rétt í þessu.

Þetta er mín gjöf til ykkar og allra hlustenda. Eins og þjóðin veit var ég með Lífsleikni Gillz, sem sló í gegn í bíó. Við vorum að pæla í að gefa hana út á DVD. Svo hugsuðum við, DVD-sala er léleg. Þannig að við opnuðum lénið Lifsleiknigillz.is. Þannig að fólk getur farið á síðuna og horft á myndina á netinu.

 

Auglýsing

læk

Instagram