Lögreglan lýsir eftir 83 ára gömlum ferðamanni

Uppfært: Michael Roland Sasal er fundinn.

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir erlendum ferðamanni, Michael Roland Sasal, sem ekkert hefur spurst til síðan hann kom til landsins 30. nóvember síðastliðinn. Sasal er 83 ára gamall og frá Bandaríkjunum. Lögregla hefur ekki mynd af honum. Hann er með þunnt grátt hár og notar gleraugu. Ekkert er vitað um klæðnað hans.

 „Michael ætlaði að hitta konu á Hótel Kríunesi við Elliðavatn en hann kom ekki. „Hann er ekki með síma og notar ekki samfélagsmiðla,“ segir Gunnar Hilmarsson aðalvarðstjóri hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í samtali við Vísi.is

 Lögreglan biður þau sem verða hans vör eða vita um ferðir hans að hafa samband við Lögregluna á höfuðborgarsvæðinu í síma 444-1000.

Auglýsing

læk

Instagram