Norskur svartmálmhaus flippar í Bónus

Olve Eikemo, betur þekktur sem Abbath Doom Occulta forsprakki norsku svartmálmssveitarinnar Immortal, var staddur á Íslandi á dögunum.

Hann var hér ásamt félögum sínum í Motörhead ábreiðubandinu Bömbers. Immortal er hins vegar talsvert stærri hljómsveit og algjör goðsögn í heimi svartmálsins. Hljómsveitin er að sjálfsögðu norsk.

Við höfum svo sem ekki mikið um ferðalag Abbath að segja fyrir utan að hann lét taka þessa mynd af sér í Bónus. Við vildum bara sýna ykkur hana. Annað var það ekki:

Auglýsing

læk

Instagram