Óska eftir pistlahöfundi til að skrifa um kynlíf og kannabis

Bandaríska frétttasíðan The Cannabist hefur auglýst eftir pistlahöfundi sem á að fjalla um kynlíf með áherslu á kannabisefni. Umsóknarfrestur rennur út miðvikudaginn 1. október.

Skömmu áður en neysla á kannabisefnum var lögleidd í Colorado í Bandaríkunum opnaði dagblaðið The Denver Post fréttasíðuna The Cannabist. Þar er fjallað um fjölbreytt málefni frá sjónarhorni kannabisefna og þeirra sem neyta efnanna.

Í lýsingu á starfinu, sem er unnið í verktakavinnu, segir að pistlahöfundurinn skrifi um kynlíf, sambönd og nánd ásamt vandamálum þessu tengt í heimi þar sem kannabisefni eru að verða lögleg og oftar en ekki notuð í svefnherberginu. „Pistlahöfundurinn fjallar um málefnin út frá eigin reynslu, skoðar tískustrauma, gagnrýnir vörur og svarar spurningum lesenda.“

Auglýsing

læk

Instagram