Páll Óskar verður í þjóðlegum fötum á Þjóðhátíð

Búningurinn sem Páll Óskar Hjálmtýsson kemur fram í á Þjóðhátíð í Eyjum um verslunarmannahelgina er tilbúinn. Þetta kemur fram í myndbandi þar sem listamennirnir sem koma fram á hátíðinni í ár eru kynntir.

„Já, það er tilbúið. Það verður mjög þjóðlegt. Með tilvísun í fánalitina,“ segir Páll Óskar í myndbandinu.

Jón Jónsson, Júníus Meyvant og Stefán Hilmarsson koma einnig fram í myndbandinu sem má sjá hér fyrir neðan.

Auglýsing

læk

Instagram