Pétur Jóhann snýr aftur í útvarp

Pétur Jóhann Sigfússon snýr aftur í úvarp á mánudag þegar hann stýrir þættinum Sumarmorgnar ásamt sínum gamla félaga, Dodda litla. Þetta kemur fram á vef RÚV.

Virkir morgnar eru á leiðinni í sumarfrí og Doddi litli heldur utan afleysingarþáttinn Sumarmorgna í sumar. Fólk úr ýmsum áttum stýrir þættinum með Dodda og fyrstu vikuna mætir Pétur Jóhann á svæðið.

Doddi og Pétur stýrðu þættinum Ding Dong fyrir rúmum áratug. Þátturinn naut mikilla vinsælda á útvarpsstöðvunum Radio, Radio-X og loks Fm957.

Söng-, leikhús- og fjölmiðlakonan Salka Sól Eyfeld tekur svo við af Pétri og stýrir þættinum með Dodda í tvær vikur.

Hér er eitt eldgamalt brot úr Ding Dong.

 

Auglýsing

læk

Instagram