Píratar stærstir ásamt Sjálfstæðisflokknum

Stuðningur við Pírata hefur aukist mikið undanfarið og flokkurinn er nú með mest fylgi allra flokka ásamt Sjálfstæðisflokknum. Þetta kemur fram í skoðanakönnun MMR sem gerð var á tímabilinu 13. til 18. mars.

Fylgi Pírata mældist nú 23,9%, borið saman við 12,8% í síðustu könnun. Fylgi Sjálfstæðisflokksins mældist hins vegar nú 23,4% samanborið við 25,5% í síðustu könnun. Munurinn á fylgi flokkanna er innan tölfræðilegra vikmarka.

Fylgi Samfylkingarinnar stendur í stað og mælist 15,5%, borið saman við 14,5% í síðustu könnun. Fylgi Framsóknarflokksins mælist nú 11,0%, borið saman við 13,1% í síðustu könnun.

Fylgi Vinstri-grænna mælist nú 10,8%, borið saman við 12,9% í síðustu könnun. Fylgi Bjartrar framtíðar minnkar mikið og mælist nú 10,3%, borið saman við 15,0% í síðustu könnun.

Stuðningur við ríkisstjórnina er nú 33,4% en var 36,4% í síðustu mælingu.

Svarfjöldi var 969 einstaklingar. Samtals voru 78,6% sem gáfu upp afstöðu til flokka, aðrir kváðust óákveðnir (7,2%), myndu skila auðu (6,9%), myndu ekki kjósa (2,8%) eða vildu ekki gefa upp afstöðu sína (4,4%).

Auglýsing

læk

Instagram