Popplag Sveinbjargar í Kastljósinu: Ég hefði átt að Gúggla betur …Gerði það ekki!

Sveinbjörg Birna Sveinbjörnsdóttir, oddviti lista Framsóknarflokksins og flugvallarvina, viðurkenndi í Kasljósi í gær að það hefðu verið mistök af hennar hálfu að skipa Gústaf Níelsson sem varamann í mannréttindaráði borgarinnar.

Sjá einnig: Maðurinn á bakvið lagið

Nútíminn er alltaf að leita nýrra leiða til að segja fréttir og í staðinn fyrir að skrifa hér hvað hún sagði í Kastljósinu fengum við Þorstein Baldvinsson til að smíða popplag úr frammistöðu hennar í gær.

Útkoman er ekkert minna en stórkostleg. Þú munt hlusta aftur og aftur. Við lofum því. #gerðiþaðekki

Hér kemur það: Sveinbjörg Birna – Gerðiþaðekki feat. Sigmar Guðmunds.

Auglýsing

læk

Instagram