Ragnhildur Steinunn fékk innblástur frá Rihönnu

Seinna undanúrslitakvöld í Söngvakeppni Sjónvarpssins stendur nú yfir í Háskólabíó. Þær Ragnhildur Steinunn, Gunna Dís og Salka Sól eru kynnar keppninnar en klæðnaður þeirra vekur jafna mikla athygli hjá tískuspekingum.

Í kvöld klæddust þær allar rauðu og Ragnhildur Steinunn virðist hafa sótt innblástur til söngkonunnar Rihönnu. Rihanna mætti í svipuðum kjól á Grammy-verðlaunin árið 2013 en það var Azzedine Alaia sem hannaði kjólinn hennar.

Ragnhildur Steinunn og Rihanna eru að sjálfsögðu báðar stórglæsilegar og það er ekki séns að við reynum að skera úr hvor klæddist kjólnum betur.

Auglýsing

læk

Instagram