Rick Astley kemur fram í Hörpu

Breski hjartaknúsarinn Rick Astley er væntanlegur til landsins. Hann kemur fram á tónleikum í Eldborgarsal Hörpu þann 1. maí næstkomandi. Miðasala fer fram í Hörpu og á harpa.is og midi.is.

Rick Astley lagði heiminn að fótum sér árið 1987 með laginu Never gona give you up sem fór beinustu leið í fyrsta sæti vinsældalista í 25 löndum samtímis. Hlustaðu á lagið hér fyrir neðan.

Rick Astley hefur átt átta lög á topp 10 í Bretlandi og þegar hann dró sig í hlé árið 1993 af persónulegum ástæðum hafði hann selt yfir 40 milljón plötur á heimsvísu.

Astley sneri aftur í tónlistarbransann árið 2007 og hefur síðan þá gefið út tvær plötur. Þá hefur hann komið reglulega fram á tónleikum en þó helst ekki í mikilli fjarlægð frá Englandi þar sem honum mun vera illa við flugvélar.

Auglýsing

læk

Instagram