Sara Heimis kynntist Rich Piana á Facebook: „Sumt fólk mun aldrei finna svo ást í lífinu“

Vaxtaræktarkonan Sara Heimisdóttir og vöðvatröllið Rich Piana ganga í það heilaga á Mr. Olympia-sýningunni í Las Vegas í næstu viku. Sara og Rich kynntust á Facebook og hún segir í samtali við Fréttatímann í dag að fólk elski hann vegna þess að hann er svo hreinn og beinn.

Sjá einnig: Hver er þessi hrikalega vöðvastælti nýjasti tengdarsonur Íslands?

Sara segir í Fréttatímanum að þau hafi talað aðeins saman fyrir tveimur árum, vitað af hvort öðru en svo kynnst í gegnum Facebook. „Við byrjuðum saman fyrir einhverjum mánuðum síðan en þetta small svona rosalega vel saman,“ segir hún.

Við erum eiginlega alveg eins, eigum svo margt sameiginlegt og þetta var bara „meant to be.“ Sumt fólk mun aldrei finna svo ást í lífinu en við erum mjög heppin að hafa fundið hvort annað.

Sara flutti til Orlando fyrir um fimm árum og segir í Fréttatímanum að hún hafi ákveðið að gera eitthvað meira með líf sitt — að láta draumana rætast.

„Ísland er bara svo lítið land. Mamma var búin að vera flugfreyja hjá Flugleiðum í 25 ár svo ég hafði verið mikið hér og er mjög amerísk í mér. Ég er meira að segja fædd 4. júlí. Ég sé ekki fyrir mér að flytjast aftur til Íslands,“ segir hún.

Sara keppti í fitness þegar hún kom til Flórída en hún er nú flutt í glæsivillu Rich Piana í Los Angeles. Hún segir í Fréttatímanum að Rich hafi fengið sig til að líta þetta öðrum augum en hún áður gerði.

„Eins og fólk getur séð er hann öðruvísi en allir. Þú finnur ekki hreinskilnari mann. Þess vegna elskar fólk hann, hann er svo hreinn og beinn,“ segir hún.

„Hann segir til dæmis ungu fólki það sem aðrir segja þeim ekki. Hann sagði mér að það væri bara heimskulegt að vera að keppa í þessu sporti, það væri bæði peninga- og tímasóun. Maður er að kaupa sér rándýr bíkiní með öllu blinginu á. Ég ætti frekar að nota tímann í að stofna fyrirtæki og reyna að græða peninga. “

Hér má sjá Söru og Rich æfa saman í nýju myndbandi

Auglýsing

læk

Instagram