Sara Heimis og Chris Miller skiptast á ástarjátningum: „Þú fékkst mig til að trúa á sjálfan mig“

Vaxtaræktarkonan Sara Heimisdóttir hefur tekið saman við kraftakarlinn Chris Miller. Þau Rich Piana skildu í sumar eftir að hafa verið saman í ár. Þetta kemur fram á vef DV.

Sjá einnig: Rich Piana og Sara Heimis skilja: „Við áttum klikkað og æðislegt ár saman“

Miller virðist afar ánægður með Söru og skrifar langa ástarjátningu til hennar á Instagram-síðu sinni.

Hann segir Söru hafa fallega sál og hún hafi dregið hann aftur í ljósið á myrkum tímum.

Þú fékkst mig til að trúa á sjálfan mig aftur og hefur sýnt mér hvernig lífið á að vera.

Miller lætur ekki þar við sitja. „Þú ert ein af fallegu manneskjum sem ég hef hitt, bæði að innan sem utan. Aldrei gleyma því og aldrei gleyma að ég elska þig, sama hvað dynur á. Þú ert fullkomin og ég verð alltaf hér til að grípa þig þegar þú dettur,“ skrifar hann einnig.

Sara deilir mynd af þeim skötuhjúunum ásamt textanum frá Miller og bætir sjá við orðum til kærastans.

Hún segir að það sé ótrúlegt að finna einhvern sem virkilega elskar mann og sem vill mann þrátt fyrir skapsveiflur. „Ég vil bara þakka þér,“ skrifar hún.

Auglýsing

læk

Instagram