Steiney með lausn við vandamálum Manuelu: „Fer inn á Instagramið hjá pabba“

Samfélagsmiðlastjarnan Manuela Ósk Harðardóttir, vakti athygli í vikunni þegar hún kvartaði yfir því að fylgjendur hennar væru ekki nógu duglegir að setja like við myndirnar hennar. Reykjavíkurdóttirin og leikkonan Steiney Skúladóttir er ein af þeim sem hefur tjáð sig um málið á Twitter en hún er með einfalda lausn á vandamálinu.

„Þegar ég er á bömmer yfir of fáum lækum á instagram fer ég inn á instagramið hjá pabba og líður betur,“ skrifar Steiney á Twitter.

Hún deilir svo skjáskoti af Instagram-síðu föður síns þar sem sést að hann er einungis með tvö like á mynd sem hann deildi með fylgjendum sínum.

Auglýsing

læk

Instagram