Þjálfari Gunnars: Hann sýnir stundum tilfinningar

Eftir frækna sigra æfingarfélaganna Gunnars Nelson og Conor McGregor í Dyflinni á dögunum hefur kastljós fjölmiðla beinst að þeim. John Kavanagh, þjálfari Gunnars og McGregor, hefur fengið margar beiðnir um viðtöl og segir á Facebook-síðu sinni í dag að hann hafi ekkert á móti því að verða við þeim. Hann gefur þó svör við þremur spurningum sem allir virðast spyrja.

Á íslensku myndi þetta hljóma svona, með útskýringum: 1. Nei. Þetta er ekki sviðsett og já, hann er alltaf svona. – Kavanagh segir í athugasemd á Facebook að þetta svar eigi bæði við hinn æsta McGregor og hinn pollrólega Gunnar. 2. Þeir virðast vera mjög ólíkir en eru mjög góðir vinir. – Semsagt Gunnar og McGregor. 3. Já, hann sýnir stundum tilfinningar. – Um Gunnar. Þar höfum við það!

Auglýsing

læk

Instagram