Var líklega ein á bensínstöð í Breiðholti um jólin, kærð fyrir húsbrot og þjófnað

Kona var handtekin á bensínstöð í Breiðholti um miðnætti í nótt. Hún var í annarlegu ástandi og er talið að hún hafi verið inni á bensínstöðinni frá því að henni var lokið á aðfangadag.

Hún hefur því að öllum líkindum varið jólunum ein á bensínstöðinni.

Konan er kærð fyrir húsbrot og þjófnað og gisti fangageymslur í nótt.

Auglýsing

læk

Instagram