Versta vegabréfsmynd allra tíma vekur heimsathygli: „Hún kæmist aldrei úr landi með þetta“

Þegar Chelsey Ramos, frá Austin í Texas, fékk sent nýtt vegabréf á dögunum bjóst hún ekki við að verða heimsfræg. Myndin í vegabréfinu er hins vegar svo rosalega slæm að eftir að hún birti hana á vefnum Reddit var fjallað um hana á vef Huffington Post, einum mest lesna fréttamiðli í heimi.

Chelsey var að skipuleggja ferð til Þýskalands ásamt kærasta sínum, Reece Lagunas. Af einhverjum ástæðum tjáir hann sig um málið við Huffington Post en ekki hún. Hann segir að þau hafi farið í Costco til að láta taka af sér passamyndir.

Myndin sem Chelsey fékk var í fyrstu fullkomlega eðlileg

Hún fékk svo vegabréfið og þessi mynd blasti við henni

„Hún var brjáluð,“ segir Reece í samtali við Huffington Post. „Skiljanlega! Hún borgaði fyrir vegabréf sem kom svona hræðilega út. Hún kæmist aldrei úr landi með þetta.“

Þau gátu samt hlegið að þessu og birtu svo myndina á Reddit. Reece segir að bandarísk yfirvöld hafi verið afar hjálpleg þegar þau kvörtuðu og að nýtt vegabréf sé á leiðinni.

Allt er gott sem endar vel.

Auglýsing

læk

Instagram