Kattarshians-kettlingarnir rifu niður myndavél í beinni útsendingu í húsinu, sjáðu myndbandið

Mikið fjör var hjá kettlingunum í raunveruleikaþættinum Keeping Up With The Kattarshians á Nútímanum í morgun. Fjörið fór reyndar algjörlega úr böndunum þegar kettlingarnir rifu niður eina af þremur myndavélum sem sýna frá ævintýrum þeirra. Horfðu á myndbandið hér fyrir ofan.

Horfðu á Kattarshians í beinni útsendingu

Fimm systkini eru í húsinu þessa dagana og fólk frá öllum heimshornum fylgist með. Þátturinn er vinsælastur meðal fólks í Þýskalandi, Bandaríkjunum og að sjálfsögðu Íslandi.

Á næstunni verður unnið í að finna heimili handa kettlingunum fimm sem eru í húsinu núna en þá flytja aðrir kettlingar inn.

Auglýsing

læk

Instagram