Læknar voru útskrifaðir úr háskólanum í Árósum í Danmörku í vikunni. Skólameistarinn Allan Flyvbjerg ákvað að bregða á leik og fékk viðstadda til að taka íslenska víkingafagnið: Húhh! Horfðu á myndbandið hér fyrir neðan.
Sjá einnig: Mumford & Sons tók víkingafagnið á tónleikum í Danmörku, sjáðu myndbandið
Víkingafagn strákanna okkar og stuðningsfólks karlalandsliðsins í fótbolta hefur vakið mikla athygli. Þýska dagblaðið Berliner Morgenpost hefur sett upp sérstaka síðu helgaða fagninu þar sem fólk getur ýtt á takka og fengið fagn.
Þá tók breska hljómsveitin Mumford & Sons fagnið á tónleikum í Danmörku á dögunum.
Horfðu á myndbandið frá háskólanum í Aarhus hér fyrir neðan.