Myndband: Obama las upp ömurleg ummæli frá virkum í athugasemdum og gekk frá Donald Trump í leiðinni

Barack Obama Bandaríkjaforseti mætti í spjallþátt Jimmy Kimmel í gærkvöldi og las upp nokkur vel valin ummæli frá virkum í athugasemdum í föstum lið sem kallast Mean Tweets. Þetta var eflaust í síðasta skipti sem Obama mætir í þáttinn sem forseti Bandaríkjanna en nýr forseti verður kjörinn í nóvember.

Eins og alltaf þegar Obama mætir í svona þætti var hann mjög skemmtilegur. Hann nýtti líka tækifærið og gjörsamlega gekk frá Donald Trump, frambjóðanda Repúblikanaflokksins, með einni setningu.

Horfu á myndbandið hér fyrir neðan.

Auglýsing

læk

Instagram