Radiohead sendir frá sér nýtt lag (!!!), sjáðu myndbandið

Hljómsveitin Radiohead hefur sent frá sér nýtt lag: Burn the Witch. Með laginu fylgir myndband sem má sjá hér fyrir neðan.

Aðdáendur Radiohead hafa velt fyrir sér næstu skrefum Radiohead í vikunni eftir að hljómsveitin virtist láta sig hverfa af internetinu. Hún gladdi þó aðdáendur sína í dag með því að senda frá sér lag.

Radiohead kemur fram á Secret Solstice-hátíðinni í Laugardal í sumar. Horfðu á myndbandið hér fyrir neðan. Það er ansi skemmtilegt.

Auglýsing

læk

Instagram