Ragnhildur Steinunn og Loreen í stuði, blótuðu fimm sinnum á einni mínútu í beinni

Söngvakeppnin á RÚV í gær var stórskemmtileg og stútfull af óvæntum uppákomum. Ein af sérstakari og óvæntari uppákomum kvöldsins var hressandi viðtal Ragnhildar Steinunnar og Gunnu Dísar við sænsku söngkonuna Loreen.

Loreen sló sjálf tóninn með því að segja „fokking“ og Ragnhildur Steinunn tók við með gullnu setninguna: „What do we have to do to win this shit“ — eitthvað sem öll þjóðin hefur á einhverjum tímapunkti hugsað.

Nútíminn ræsti hinn svokallaða „fuck shit teljara“ og taldi blótsyrðin. Við höfum áður notað teljarann á rapparann Gísla Pálma og bjuggumst ekki við að fá að nota hann í tengslum við Eurovision. Horfðu á myndbandið hér fyrir ofan.

Sjá einnig ▶️ Áttræða fyrirsætan Ásdís Karlsdóttir er alveg með þetta, myndbandið frá myndatökunni

Lækaðu Facebook-síðu Nútímans myndbanda og þú missir ekki af neinu!

Auglýsing

læk

Instagram