Sjáðu þúsund manns spila lagið Learn to Fly með Foo Fighters á sama tíma

Þúsund ítalskir tónlistarmenn komu saman á dögunum og spiluðu lagið Learn to Fly á sama tíma. Þetta magnaða myndband má sjá hér fyrir neðan.

Tilgangurinn er að Dave Grohl og félagar í Foo Fighters sjái flutninginn og komi fram á tónleikum í Romagna en hljómsveitin kom síðast fram þar árið 1997.

Það verður erfitt fyrir Grohl að hafna þessari beiðni. Sjáðu myndbandið hér fyrir neðan.

Auglýsing

læk

Instagram