Grunaður um tvö alvarleg kynferðisbrot gegn sömu konunni, örskýring um málið

Um hvað snýst málið?

Lögreglan leitar að karlmanni sem grunaður um að hafa framið tvö alvarleg kynferðisbrot gegn sömu konunni með viku millibili í Móabarði í Hafnarfirði. Hans hefur verið leitað frá því í síðustu viku.

Hvað er búið að gerast?

Fyrri árásin átti sér stað mánudagsmorguninn 15. febrúar um klukkan átta. Maðurinn villti á sér heimildir til að komast inn á heimili konunnar en samkvæmt Vísi þóttist hann vera frá orkufyrirtæki og sagðist þurfa að lesa af mælum. Konan var ein heima með ungabarn þegar árásin átti sér stað.

Síðari árásin var í gær, 21. febrúar, um klukkan 20. Árni Þór Sigmundsson, yfirmaður ofbeldis- og kynferðisbrotadeildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, segir á vef RÚV að árásin hafi verið mjög alvarleg. Fjölmennt lið lögreglu var kallað út að Móabarði í Hafnarfirði í gærkvöldi vegna málsins.

Árásarmaðurinn var farinn af vettvangi þegar lögregla mætti á staðinn. Hann er um 180 sentimetrar á hæð og fölleitur. Hann var dökkklæddur, með svarta húfu og svarta hanska. Hann er talinn vera á aldrinum 35 til 45 ára.

Hvað gerist næst?

Lögreglan biður þau sem geta veitt upplýsingar um manninn og ferðir hans um að hafa samband við lögreglu í síma 444 1000. Upplýsingum má einnig koma á framfæri á netfangið abending@lrh.is eða í einkaskilaboðum á fésbókarsíðu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.

Örskýringar eru 200 orða fréttaskýringar Nútímans um mál sem mikið er fjallað um. Sendu okkur póst ef þú ert með hugmynd að örskýringu.

Auglýsing

læk

Instagram