Örskýring: Dómari synjar kröfu Glitnis um lögbann en um hvað snerist aftur málið?

Um hvað snýst málið?

Héraðsdómur Reykjavíkur hefur synjað kröfu Glitnis HoldCo um að staðfest yrði með dómi lögbann sem Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu setti á fréttaflutning Stundarinnar og Reykjavík media í október á síðasta ári.

Hvað er búið að gerast?

Glitnir hrundi með bankakerfinu á Íslandi í október árið 2008.

Stundin hóf að fjalla um gögnin innan úr Glitni í samstarfi við Rekjavík Media og The Guardian í byrjun október. Umfjöllunin sneri að viðskiptum Bjarna Bendiktssonar, Benedikts Sveinssonar, föður Bjarna, og Einar Sveinsson, föðurbróður hans.

Á meðal þess sem fjallað hefur verið um er 50 milljóna króna kúlulánaskuld sem Bjarni losnaði við í aðdraganda hrunsins og skuld vegna áhættuviðskipta sem faðir Bjarna greiddi upp fyrir hann.

Þrotabú bankans krafðist lögbanns á fréttaflutning Stundarinnar og Reykjavík Media sem byggður á gögnum sem lekið var til breska dagblaðsins The Guardian. Sýslumaður féllst á bannið og því máttu fjölmiðlarnir ekki birta fleiri fréttir úr gögnunum.

Í tilkynningu frá þrotabúi Glitnis kom fram að lögbannskrafan byggi á því að ástæða hafi verið til þess að ætla að viðkvæm gögn um þúsundir viðskiptavina væru í höndum Stundarinnar.

Hvað gerist næst?

Lögbannið verður áfram í gildi þangað til áfrýjunarfrestur rennur út eftir þrjár vikur. Ef Glitnir áfrýjar gildir lögbannið þangað til dómur fellur í því máli.

Örskýringar eru 200 orða fréttaskýringar Nútímans um mál sem mikið er fjallað um. Sendu okkur póst ef þú ert með hugmynd að örskýringu.

Auglýsing

læk

Instagram