Allt það sem er að gerast í rappinu í sumar: Young Thug, Wayne, o.fl.

Viðburðir

Í gær lét sniðugt gamalmenni í Hafnarfirðinum eftirfarandi orð falla:

„Í sumar mun margt furðulegt fólk halda til Íslands. Þar á meðal maður sem kallar sig Ungur Bófi, en hann ætlar að halda tónleika í Laugardalshöllinni. Svo ætlar hann Ríkharður Rósenberg að mæta í Laugardalinn, ásamt Stóra Seimi, Andra Patreki, Abel Sólmari og konu sem heitir í höfuðið á Menntaskólanum á Akureyri. Já, svo er það hann Litli Veigur, hann verður víst líka í Höllinni – en ég er nú kannski spenntastur fyrir Peysujarlinum.“

Ekki verður greint frá höfundi þessara orða í þessari grein en aðeins áréttað að umrætt gamalmenni hafi verið að velta fyrir sér þeirri miklu rappveislu sem er í vændum á Íslandi í sumar og gert sér leik úr því að íslenska listamannanöfn þeirra rappara sem leggja leið sína til landsins: Young Thug, Rick Ross, Big Sean, Anderson .Paak, Ab-Soul, Young MA, Lil’ Wayne og Earl Sweatshirt. 

Það er óhætt að segja að það verði nóg að SKE hvað rapptónlist varðar á Íslandi í sumar:

1. RAPPPORT  / RAPPPORT RAPPPORT RAPPPORT RAPPPORT 

Hvar: Kex Hostel (Skúlagata 28, 101 RVK)
Hvenær: Laugardaginn 20. maí 
Fram Koma: Sevdaliza, GKR, Alvia, Forgotten Lores, Sturla Atlas, Cyber

„Laugardaginn 20. maí munu Red Bull Music Academy og KEX Hostel leiða saman hesta sína á fyrstu árlegu eins dags rapp-hátíðinni RAPPPORT. RAPPPORT verður haldin í portinu fyrir aftan KEX Hostel.
Íranska tónlistarkonan SEVDALIZA sem nýverið gaf út sína fyrstu breiðskífu, ISON, snýr aftur til Reykjavíkur eftir að hafa spilað á Sónar Reykjavík í Hörpu í fyrra. Ásamt SEVDALIZA og hljómsveit hennar koma einnig fram GKR, Alvia, Forgotten Lores, Sturla Atlas og Cyber.“ 

Nánar: https://www.facebook.com/event…

2. LÓA 2017 / LÓA 2017  / LÓA 2017  / LÓA 2017  / LÓA 2017 

Hvar: Prikinu 
Hvenær: Laugardaginn 27. maí
Fram Koma: Egill Spegill, DJ B-Ruff, Young Nazareth, Logi Pedro, Karítas, Rampage, Herra Hnetusmjör, Birnir, Plútó

Hin árlega DJ-veisla á Prikinu verður haldin laugardaginn 27. maí. 

3. SECRET SOLSTICE 2017 / SECRET SOLSTICE 2017  

Hvar: Laugardalnum
Hvenær: fimmtudaginn 15. júní – sunnudagsins 18. júní
Fram Koma: Rick Ross, Big Sean, Young M.A., Anderson .Paak, Ab Soul og fleiri. 

„Eins og síðustu ár verða ýmis stór nöfn í boði á Secret Solstice hátíðinni í sumar. Þetta ár verður sérstaklega stórt í rappdeildinni en nokkrir af stærstu listamönnum heimsins munu mæta í Laugardalinn í sumar …“

Nánar: https://secretsolstice.is/

https://www.visir.is/g/20171703…

4. YOUNG THUG KRONIK VEISLA / YOUNG THUG KRONIK VEISLA 

Hvar: Laugardalshöllinni
Hvenær: 
föstudaginn 7. júlí
Fram Koma: Young Thug, Krept & Konan, Emmsjé Gauti, Aron Can, Alvia Islandia, Úlfur Úlfur, Gísli Pálmi, Sturla Atlas, Herra Hnetusmjör, Birnir, Alexander Jarl, Benni B-Ruff, Egill Spegill, DJ Karitas

„Einn vinsælasti rapparinn í heiminum í dag Young Thug er á leiðinni til landsins og heldur tónleika í Laugardalshöllinni föstudaginn 7. Júlí. Um er að ræða sannkallaða rappveislu sem verður talsvert umfangsmeri en sem nemur hefðbundnum tónleikum. Breska sveitin Krept & Konan kemur einnig fram ásamt Emmsjé Gauta, Aroni Can og Alviu Islandia … Nú hafa enn fleiri listamenn verið tilkynntir til leiks. Þeir listamenn sem bætast við eru Úlfur Úlfur, Gísli Pálmi, Sturla Atlas, Herra Hnetusmjör, Birnir, Alexander Jarl, Benni B-Ruff, Egill Spegill og Karitas.“

Nánar: https://www.facebook.com/event…

5. POST MALONE Í HÖRPUNNI / POST MALONE Í HÖRPUNNI

Hvar: Í Hörpunni
Hvenær: 
þriðjudaginn 11. júlí
Fram Koma: Post Malone, Alexander Jarl, Auður

„Eitt allra heitasta nýstirni popp- og hip hop senunnar er á leiðinni til landsins! Hinn eini sanni Post Malone mun spila í Silfurbergi, Hörpu, þann 11. júlí 2017. Og nú er komið í ljós hverjir hita upp; það eru Alexander Jarl og Auður.“

Nánar: https://www.facebook.com/event…

6. NIGHT + DAY FESTIVAL / NIGHT + DAY FESTIVAL / NIGHT + DAY FESTIVAL

Hvar: Við Skógafoss 
Hvenær: föstudaginn 14. júlí
Fram Koma: The XX, Earl Sweatshirt og fleiri

„Night + Day hátíðin er á vegum hljómsveitarinnar The xx sem hefur haldið samskonar hátíðir víða um heim með góðum árangri, til dæmis í Lissabon, Berlín og Tullum í Mexikó. Markmiðið með hátíðinni er að halda tónleika á stöðum þar sem ekki hafa verið haldnir tónleikar áður. Hluti af aðgangseyri hátíðarinnar verður settur í sjóð sem notaður verður til að bæta aðstöðu í kringum Skógafoss.“

Nánar: https://www.facebook.com/event…

https://www.visir.is/g/20171705…

7. LIL WAYNE Í HÖLLINNI / LIL WAYNE Í HÖLLINNI / LIL WAYNE Í HÖLLINNI /

Hvar: Laugardalshöllinni
Hvenær: Í byrjun ágústmánaðar
Fram Koma: Lil Wayne

„Bandaríski rapparinn Lil Wayne er væntanlegur til landsins í sumar. Hann mun halda tónleika í Laugardalshöllinni í byrjun ágústmánaðar, samkvæmt heimildum Vísis.“

Nánar: https://www.visir.is/g/20171705…

Orð: RTH

Auglýsing

læk

Instagram