Hákarlinn á Hauganesi heillar ekki ljóshærðan bloggara

Youtube-rásin The Blonde Abroad (Ljóskan erlendis) státar sig af 19.000 áskrifendum. Rásinni stýrir hin viðfelldna Kiersten Rich en árið 2011 sagði hún starfi sínu í fjármálageiranum lausu með það fyrir stafni að ferðast um heiminn.

Nánar: https://www.dailymail.co.uk/tra…

Nýverið sóttu hún Ísland heim og staldraði meðal annars við hjá Ekta Fiski á Hauganesi þar sem Elvar Reykjalín, framkvæmdastjóri fyrirtækisins, bauð henni upp á hákarl (sjá hér fyrir ofan). Í stuttu máli geðjaðist henni ekki bragðið.

Í stuttum texta sem fylgir myndbandinu á Youtube lýsir hún reynslu sinni á eftirfarandi veg:

„Kokkurinn Anthony Bourdain hefur lýst hákarli sem það versta, andstyggilegasta og hryllilegasta sem hann hefur nokkurn tímann smakkað. Þetta var svo sannarlega raunin en lyktin var enn sterkari en bragðið.“

– Kiersten Rich

Hér fyrir neðan er svo myndband af heimsókn Kiersten til Íslands árið 2014.

Auglýsing

læk

Instagram