Íslendingar í 2. sæti yfir mesta klámáhorf miðað við höfðatölu

Fréttir

Klámsíðan Pornhub sendi nýverið frá sér skýrslu sem varpar ljósi á klámnotkun mannkynsins (Pornhub er 51. vinsælasta vefsíða heims samkvæmt greiningarfyrirtækinu Alexa, ef miðað er við tölfræði frá 28. desember 2016). 

Í skýrslunni kemur fram að Íslendingar eru í 2. sæti yfir mesta klámáhorf miðað við höfðtaölu. Bandaríkjamenn eru í 1. sæti.

Fleiri áhugaverðir punktar koma fram í skýrslunni, t.d. það að stórir íþróttaviðburðir geta dregið verulega úr klámáhorfi þjóða; þegar Real Madrid og Atletico Madrid mættust í úrslitaleik Meistaradeildarinnar í knattspyrnu síðastliðin 28. maí dróst klámáhorf Spánverja saman um 20% (leikurinn hafði sambærileg áhrif á áhorf Íslendinga, en á meðan honum stóð dróst klámáhorf Íslendinga saman um 17%). 

Nánar: https://www.inverse.com/articl…

Auglýsing

læk

Instagram