Jeff Goldblum og Haley Reinhart „ljúffeng“ á sviði

Síðastliðinn 9. nóvember gaf bandaríski leikarinn Jeff Goldblum út plötuna The Capitol Studio Sessions í samstarfi við Mildred Snitzer hljómsveitina (sjá neðst). 

Platan geymir 14 lög, þar á meðal þekju af laginu My Baby Just Cares For Me. Lagið var upprunalega samið árið 1930 en útgáfa Ninu Simone frá 1958 sló eftirminnilega í gegn árið 1987. 

Lagið My Baby Just Cares For Me í flutningi Goldblum og Mildred Snitzer sveitarinnar er stórfínt, en myndbandið við lagið, tekið á tónleikum sveitarinnar í Capitol hljóðverinu—er enn betra (sjá hér að ofan). Bandaríska söngkonan Haley Reinhart syngur texta lagsins og eru margir á því að kemistrían (svo við slettum aðeins) á milli Reinhart og Goldblum sé ljúffeng.

Haley Reinhart fæddist þann 9. september 1990. Hún hafnaði í þriðja sæti American Idol árið 2011 og ritaði í kjölfarið undir plötusamning hjá Interscope Records. 

Auglýsing

læk

Instagram