today-is-a-good-day

Master of None (Season 2): hugleiðingar um ástina

Áður
en hugtakið „ást“ varð til, var engin ást.

Aldrei
kom það fyrir, fyrir tíð tungumálanna, að einn maður sagði
við annan:

„Hún
er falleg og kynlífið er gott – en ég veit ekki hvort að ég sé
ástfanginn; við deilum ekki sömu áhugamálunum. Ég hef gaman að
Woody Allen og Debussy en hún er meira fyrir Scorsese. Einnig finnst
henni Debussy vera ofmetinn og vill heldur hlýða á Wagner – í
ofanálag þolir hún ekki Drake.“

Þá
var ekkert sjónvarp, engin klassísk tónlist, engar kvikmyndir,
ekkert – bara þegjandi samkomulag tveggja einstaklinga (sem
bjuggu í grennd við hvort annað) sem grundvallaðist, að öllum
líkindum, á holdlegu samneyti.

Svo
fæddist tungumálið og með tungumálinu fæddust hugtök á borð
við „fegurð,“ „rómantík,“ og „samlyndi.“

Flæktust
málin þá nokkuð – því tungumálið gat einnig af sér önnur
fyrirbæri: trúarbrögð, búskap, list, pólitík, o.s.frv.

Tilhugalífið
fæddist.

Ekki
var það lengur dugandi fyrir tvær manneskjur að líka vel við
hvort annað, heldur þurftu þær nú að segja hug sinn, að
tjá ást sína í rituðu máli og töluðu, að deila sameiginlegum
áhugamálum, sumsé – AÐ TALA SAMA TUNGUMÁL.

Tungumál
og menning gerðu mönnunum kleift að dæma einhleypa manneskju út
frá fleiri eiginleikum en áður:

Ekki
bara hleypur hratt, hávaxin/n, slátraði eitt sinn híenu –
heldur líka sterklega vaxin/n, trúrækin/n, hefur áhuga á
bókmenntum.

Svo
kom tæknin – og flæktust málin enn frekar. Í dag – með
tilkomu bílanna, símanna, flugvélanna, Alnetsins,
tölvupóstsins, snjallsímanna, Tinder, o.s.frv – eru
möguleikarnir endalausir: 


1. Aldrei fyrr hafa jafn margar
manneskjur búið á jörðinni.
2. Aldrei fyrr hefur verið jafn
auðvelt að ferðast á milli landa.

3. Aldrei fyrr hefur verið
jafn auðvelt að kynnast öðrum einhleypum einstaklingum á netinu.

En
með auknum möguleikum hækkar
flækjustigið.

Þáttaröðin
Master of None fjallar að einhverju leyti um þetta, sumsé
ástina á 21. öldinni. Grínistinn Aziz Ansari fer með hlutverk
Dev Shah í þáttunum en Dev leitar af ástinni í völundarhúsi nútímatækninnar (Aziz Ansari framleiðir þáttaröðina ásamt Alan Yang). Þáttaröðin er í senn fyndin, áhugaverð og hjartnæm.

Síðastliðinn föstudag rataði önnur sería þáttarins Master of None á Netflix en fyrsta sería Master of None naut mikilla vinsælda þegar hún kom út árið 2015. 

Í tilefni útgáfu annarrar seríu Master of None tók SKE saman 10 góð lög sem hljóma í annarri seríu, mælum við jafnframt heilshugar með þáttunum: 

1. Tupac – Only God Can Judge Me

2. D’Angelo – Brown Sugar

3. Kraftwerk – Computer Love

4. Digable Planets – Rebirth of Slick

5. Craig Mack feat. Biggie Smalls – Flava In Ya Ear (Remix)

6. New Edition – Can You Stand the Rain

7. Mr. Fingers – Mystery of Love

8. Timmy Thomas – The Coldest Days of My Life

9. Ennio Morricone – Alla luce del giorno

10. Bobby Charles – I Must Be In A Good Place Now

Einnig hvetjum við lesendur til þess að kynna sér lagalistann Master of None: All Songs in Season 2 eftir Pitchfork á Spotify:

Auglýsing

læk

Instagram