Song Exploder: Hlaðvarp fyrir tónlistarunnendur

Það er frægt„Meme“ á netinu þar sem listsköpunarferlinu er lýst í sex skrefum.

1. Þetta er geggjað.
2. Þetta er vandasamt.
3. Þetta er ömurlegt.
4. Ég er ömurlegur.
5. Þetta er allt í lagi.
6. Þetta er geggjað.

Hlaðvarpsþátturinn Song Exploder fjallar að hluta til um þetta ferli, þ.e.a.s. þá erfiðisvinnu (sálarkvöl, angist) sem oft á tíðum liggur að baki tónlistarsköpuninni. Framleiðandi þáttarins, Hrishikesh Hirway, fær tónlistarmenn í heimsókn til þess að ræða eitt tiltekið lag. Tónlistarmennirnir taka lögin sín í sundur, rás fyrir rás, og leiða hlustendur í gegnum ferlið ásamt því að kynna hugmyndinni á bakvið lagið. Meistaraleg hljóðvinnsla og fagmannleg hljóðklipping gerir Song Exploder að framúrskarandi þætti.

Frá því að þátturinn fór í loftið í byrjun janúar 2014 hefur Hrishikesh Hirway fengið frábæra gesti til sín, gesti á borð við Grimes, Weezer, Kelela, RJD2, Chet Faker – og Björk; í desember í fyrra ræddi íslenska söngkonan lagið Stonemilker sem er að finna á plötunni Vulnicura. Mælir SKE sérstaklega með þeim þætti.

Hér fyrir ofan er einnig hægt að hlusta á MGMT fjalla um lagið Time to Pretend.

Nánar: www.songexploder.net

Við bendum lesendum einnig á grein sem birtist fyrr í sumar þar sem 23 uppáhalds hlaðvörp SKE voru rædd:

https://ske.is/grein/23-uppahalds-hlaðvorp-ske…

Auglýsing

læk

Instagram