Valby Bræður semja rímur af munni fram í Kronik (myndband)

Síðastliðið föstudagskvöld (5. janúar) kíkti tvíeykið Valby Bræður í útvarpsþáttinn Kronik á X-inu 977. Ásamt því að flytja lagið Svartur á leik í beinni gerðu þeir sér einnig lítið fyrir og sömdu rímur af munni fram yfir bít að eigin vali (sjá hér fyrir ofan).

Næsti þáttur Kronik fer í loftið í kvöld (á milli 18:00 og 20:00 á X-inu 977) en gestir þáttarins eru Puzzy Patrol og Daði Freyr (SAMA-SEM).

Hér fyrir neðan er svo myndband við lagið Svartur á leik sem Valby Bræður gáfu út síðastliðinn 14. desember.

Auglýsing

læk

Instagram