Eins og Nútíminn greindi frá í gær var miklu magni stolinna mynda af Hollywood-stjörnum dreift um netheima aðfaranótt sunnudags. Á meðal þeirra voru nektarmyndir af Óskarsverðlaunaleikkonunni Jennifer Lawrence en samkvæmt lista sem hakkarinn sendi frá sér rændi hann myndum af miklu fleiri stjörnum.
Grínistinn Louis CK hittir oft naglann á höfuðið og virðist hafa spáð óvart fyrir um framtíðina í viðtali við spjallþáttastjórnandann Jimmy Kimmel fyrir tveimur árum:
Ég held að fólk sé frekar barnalegt í sambandi við hvað það sendir frá sér. Núna er komið svolítið nýtt; Skýið. Þau vilja að þú notið Skýið og eru að selja það sem frábæra hugmynd. […] Og maður er bara, í alvöru? Þetta eru myndirnar mínar!