Ótrúlegt áhorf á víkingaklappið á Arnarhóli: „Það er Íslandsmanía í gangi. Það er alveg klárt“

Búið er að horfa myndband af stuðningsfólki íslenska karlalandsliðsins í fótbolta taka hið svokallaða víkingaklapp rúmlega 17 milljón sinnum á Facebook-síðu Símans. Horfðu á myndbandið hér fyrir neðan.

Myndbandið er frá athöfn sem var haldin til að taka á móti strákunum okkar á mánudaginn. Krummi Jónsson, samfélagsmiðlasérfræðingurinn sem hleður inn EM-efni á samfélagsmiðla fyrir Símann, segir að áhorfið sé hreinlega fráleitt en það má velta fyrir sér hvort myndbandið sé það útbreiddasta í sögunni úr íslenskri sjónvarpsútsendingu.

Ég get ekki sagt til um það. Ég get aðeins sagt að þetta er góð, stór sprengja. Það er Íslandsmanía í gangi. Það er alveg klárt.

Auglýsing

Gaman er að skoða ummælin við myndbandið þar sem fólk víða um heim óskar Íslandi til hamingju. Ljóst er að ein frönsk hefur sett sín orð í gegnum þýðingarvél Google:

„Ég franska og ég tala ekki íslensku, en ég segi þér Grand Bravo og þakka þér fyrir að gera mig elska aftur fótbolta [á] tíma evrunnar. Lið og landið þitt er dæmi fyrir okkur sem hafa gleymt raungildi sem fólk ætti að hafa fyrir hvort annað…“

Horfðu á myndbandið hér fyrir neðan.

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing