„Elsku vinir. Við Spaugstofumenn erum djúpt snortnir og afar hrærðir yfir öllum kveðjunum“

Karl Ágúst Úlfsson, Spaugstofumaður, skrifar færslu á Facebook þar sem hann þakkar landsmönnum kærlega fyrir allar kveðjurnar og lofin sem þeir Spaugstofumenn hafa fengið síðustu daga. En þeir félagar hlutu heiðursverðlaun Eddunnar á dögunum.

„Elsku vinir. Við Spaugstofumenn erum djúpt snortnir og afar hrærðir yfir öllum kveðjunum, hamingjuóskunum og lofinu sem dunið hefur á okkur undanfarna daga í kjölfar þess að okkur var sýndur sá sómi sem heiðursverðlaun Eddunnar eru,“ skrifar hann í færslunni.

„Við þökkum þér af öllu hjarta, kæra þjóð við sjónvarpsskjáinn og ekki síður ykkur, ómetanlega fólk á bakvið tjöldin – án ykkar hefði fátt til okkar spurst. Hér er svolítil kveðja til ykkar allra.“

Auglýsing

læk

Instagram