Fannst látinn bakvið verslunarhúsnæði á Selfossi

Íslenskur karlmaður á fimmtugsaldri fannst látinn á bak við verslunarhúsnæði á Selfossi fyrr í vikunni. Ekki er talið að andlátið hafi orðið með saknæmum hætti.

Rannsóknardeild lögreglunnar á Suðurlandi er með málið til rannsóknar. Í tilkynningu frá lögreglu segir að ekki sé hægt að veita frekari upplýsingar um málið að svo stöddu.

Auglýsing

læk

Instagram