Hver verður Maður ársins 2019?

Vísir og Bylgjan standa fyrir vali á Manni ársins 2019 og geta lesendur nú tekið þátt í að velja þá manneskju sem þeim þykir eiga nafnbótina skilið. Um tvö þúsund tilnefningar bárust í gegnum vefinn og í símatíma Reykjavík síðdegis. Komið er í ljós hvaða 10 aðilar munu berjast um titilinn.

Hin tilnefndu má sjá hér að neðan í stafrófsröð. Kosning stendur til 30. desember. Tilkynnt verður um valið í þættinum Reykjavík árdegis á Bylgjunni á gamlársdag. Greiða má atkvæði á síðu Vísis.

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir
Áslaug Arna varð yngsti kvenráðherra sögunnar þegar hún tók við embætti dómsmálaráðherra í september. Stóð í ströngu í þriðja orkupakkanum og málefnum ríkislögreglustjóra.

Bjartmar Leósson
Bjartmar vann óeigingjarnt starf á árinu þegar hann fann tugi stolinna hjóla og kom þeim aftur í réttar hendur.

Björgunarsveitarfólk landsins
Íslenskar björgunarsveitir stóðu vaktina í ár sem endranær. Ekki síst í gríðarlegu óveðri sem reið yfir landið í desember.

Eliza Reid
Forsetafrúin birti opinskáa grein í New York Times á árinu þar sem hún sagðist ekki vera handtaska eiginmanns síns og benti á að hlutverk maka ráðamanna væri skrýtið og óskilgreint.

Helgi Seljan
Rannsakaði gögn um framgang Samherja í Namibíu og varpaði ljósi á vafasamar viðskiptafléttur, mútur og ólögleg athæfi namibískra ráðamanna í þáttunum Kveik og útgefinni bók.

Hildur Guðnadóttir
Stillti sér í fremstu röð kvikmyndatónskálda með tónlist sinni við kvikmyndina Joker og sjónvarpsþáttaröðina Chernobyl. Hlaut tilnefningar til og var heiðruð með eftirsóttustu fagverðlaunum.

Jóhannes Stefánsson
Kom miklum fjölda gagna í hendur Wikileaks og sagði frá starfsárum sínum hjá Samherja. Úr varð umfjöllun Kveiks, Al Jazeera og fleiri fjölmiðla sem orsakaði meðal annars afsagnir og rannsókn á ráðherrum í Namibíu.

Margrét Lillý Einarsdóttir
Steig fram og sagði sögu sína í fréttaskýringaþættinum Kompás. Lýsti því hvernig fjölskylda hennar, barnavernd, skólakerfið og Seltjarnarnesbær brugðust þegar hún ólst upp við slæmar aðstæður hjá móður sinni.

Ragnar Þór Ingólfsson
Formaður VR lét ekki deigan síga í baráttu sinni fyrir kjörum verkafólks. Stóð í ströngu við gerð lífskjarasamninga og lét vel í sér heyra þegar honum ofbauð óréttlæti.

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson
Formaður Miðflokksins fór fyrir flokki sínum sem setti met á Alþingi í málþófi í heitum umræðum um þriðja orkupakkann. Miðflokkurinn mældist á árinu sem næst stærsti flokkur landsins.

Auglýsing

læk

Instagram