Jólastemning í Allir geta dansað í gærkvöldi

Pólfarinn Vilborg Arna og Daði Freyr voru send heim í jólaþætti Allir geta dansað í gærkvöldi. Þá eru þrjú pör farin heim og einungis sjö pör eftir. Það var jólaþema í þættinum í gær og ómuðu jólalög undir öllum dönsunum.

Daði var einnig sendur heim síðastliðinn föstudag þegar hann dansaði með Sollu Eiríks. Hann var fenginn til að dansa við Vilborgu í stað Javi og fékk því einn séns í viðbót, þau höfðu þess vegna einungis fjóra daga til æfinga.

Hér fyrir neðan má sjá dans Vilborgar og Daða frá því í gærkvöldi.

Auglýsing

læk

Instagram