María Ólafs vs Frikki Dór umræðan endurvakin

Tómas Steindórsson, Diskótekari og Barsvarsumsjónarmaður, hefur endurvakið umræðuna um hvaða lag hefði átt að vera framlag Íslands til evrópsku söngkeppninnar árið 2015. Tómas telur Maríu verðskuldaðan sigurvegara.

Umræðan, sem á sér stað á Twitter, er kurteis en ákveðin og eru eðlilega skiptar skoðanir á þessari staðhæfingu Tómasar. Hún er ekki einskorðuð við þau tvö, heldur barst einnig til umræðu lagið Í kvöld, sem var framlag Elínar Sifjar Halldórsdóttur.

Færslan er líklega svar við þekktu jarmi (meme) sem hefur reglulega skotið upp kollinum og haldið því fram að það voru mistök að senda ekki lag Friðriks, Í síðasta skipti.

Hér eru framlögin sem um er deilt frá undankeppninni 2015.

Auglýsing

læk

Instagram