Varað við netsvindli í nafni Skattsins

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur um helgina varað við svindli þar sem reynt er að komast yfir kortaupplýsingar fólks í nafni Skattsins. Í skilaboðunum er tilkynnt um meinta endurgreiðslu.

„Rétt er að árétta að þessi skilaboð eru ekki frá embættinu komin. Því er beint til fólks að opna ekki viðhengi eða hlekki sem kunna að innihalda óværu og alls ekki gefa upp persónuupplýsingar af neinu tagi,“ segir í tilkynningu frá Skattinum.

“Hafi fólk fallið fyrir þessu þá þarf, skv. leiðbeiningum lögreglunnar, að láta loka kortinu hjá viðkomandi kortafyrirtæki.“

VARÚÐ – SVIKSAMLEG SMS
Lögreglan hefur fengið tilkynningar varðandi SMS sendingar sem eru látin líta út fyrir að koma…

Posted by Lögreglan á Austurlandi on Þriðjudagur, 2. febrúar 2021

Auglýsing

læk

Instagram