Auddi Blö í hrikalegu formi í óbirtum trailer fyrir nýju þættina hans Steinda

„Það eru ekki margir sem vita að Blö er buinn að vera bodybuilder í mörg ár. Hann klæðir alltaf af sér formið — alltaf í víðum fötum, með allt niðrum sig,“ segir einkaþjálfarinn Egill Einarsson.

Egill birtir þessa mynd af Audda sem hann tók úr nýrri stiklu fyrir Hrein Skjöld, nýja þætti Steinda Jr. Þar sést að Auddi hefur verið duglegur í ræktinni undanfarin ár.

„Fyrir nokkrum árum kom Blö til mín, sköllóttur og spikfeitur. Honum fannst leiðinlegt að lyfta og latur í ræktinni. Hann spurði hvort ég gæti komið honum í Jason Statham-form. Ég er löngu búinn að koma honum í Statham-form en hann klæðir það bara alltaf af sér sem er er vel þreytt,“ segir Egill á Facebook-síðu sinni.

Eins og Nútíminn greindi frá á dögunum leikur Auddi líkamsræktargúrúið Ægi Kjeldsted í þáttunum. Ágúst Bent leikstýrir nýju þáttunum og skrifar þættina ásamt Steinda og Magnúsi Leifssyni.

Fylgdu Nútímanum á Facebook og Twitter og þú missir ekki af neinu.

Auglýsing

læk

Instagram