Auðvitað er Vin Diesel með mynd af Ólafi Darra í hausnum á Facebook-síðunni sinni

Leikarinn Vin Diesel uppfærði cover-myndina sína á Facebook rétt í þessu.

Myndin sem varð fyrir valinu, og var þar með dreift til þeirra 94 milljóna sem fylgja leikaranum á samskiptamiðlinum, var mynd af honum ásamt okkar manni, Ólafi Darra Ólafssyni.

Facebook-síðan hans lítur því svona út í dag. Glæsileg!

diesel

Myndin er tekin á tökustað kvikmyndarinnar The Last Witch Hunter. Myndin verður frumsýnd í október.

Ólafur Darri Ólafsson leikur norn í myndinni. Hann berst við Diesel í myndinni, sem leikur nornaveiðarann. Ásamt þeim fara Michael Caine, Elijah Wood og Rose Leslie með hlutverk í myndinni.

Breck Eisner leikstýrir myndinni sem fjallar um síðasta nornaveiðarann og baráttu hans við nornir í New York nútímans.

Ólafur var spenntur fyrir hlutverkinu. „Mér líst bara rosa vel á þetta hlut­verk,“ sagði Ólaf­ur í sam­tali við mbl.is á sínum tíma. „Ég fór í pruf­ur fyr­ir hlut­verkið í maí og fékk að vita í vik­unni að ég fengi hlut­verkið.“

Hér má sjá stiklu myndarinnar.

Auglýsing

læk

Instagram