Davíð Leó mun deyja ungur úr krabbameini: Hinsta óskin er að fara til útlanda með mömmu og pabba

Davíð Leó hélt upp á 16 ára afmælið sitt á sjúkrahúsi en hann hefur frá þrettán ára aldri barist eins og hetja við þann illvíga sjúkdóm sem krabbamein er. Ein af þeim sem þekkir sögu Davíðs Leó er Tinna Magg sem deilir henni á Facebook en stöðuuppfærslan hefur vakið mikla athygli.

„Síðastliðin 2,5 ár hefur þessi elska Davíð Leó barist eins og sannur ljónakonungur, af æðruleysi og krafti við krabbamein. Þetta hefur óneytanlega sett unglingi miklar skorður sem hann hefur ekki kvartað yfir heldur barist við sársauka, ógleði, aðgerðir og annað sem enginn unglingur ætti að þurfa að glíma við. Nú er svo komið að því miður er ekki hægt að gera meira fyrir hann, annað en að bæta lífsgæði þessa flotta unga manns,“ skrifar Tinna sem segir Davíð Leó aðeins óska sér eitt áður en hann kveður en það er að ferðast með fjölskyldunni sinni til útlanda – mömmu, pabba og litla bróður sínum.

Styrktu hugrakka baráttuhetju

„Eins og áður sagði var haldið upp á 16 ára afmælið (er fæddur 5. febrúar en loksins haldið upp á það, 16. mars þar sem hann var en í meðferð þann 5.feb) og það eina sem hann langar er að fara til útlanda með fjölskyldunni sinni,“ segir Tinna en Nútíminn hafði samband við móður Davíðs Leó og fékk góðfúslegt leyfi til þess að segja frá söfnuninni sem búið er að blása til fyrir fjölskylduna.

Vala Rut, móðir Davíðs Leó, á varla orð yfir umhyggjusemi Íslendinga og vill taka það fram að fjölskyldan vonist þó alltaf eftir kraftaverki og að drengurinn hennar fái að njóta fleiri ára með fjölskyldunni sinni.

„Ef þú ert aflögufær og vilt styrkja þessa dásamlegu hetju sem hefur staðið keikur og haldið áfram við ótrúlegar aðstæður þá er hér reikningsnúmer mömmu hans,“ skrifar Tinna Magg.

Vala Rut Sjafnardóttir
Kennitala: 251279-4979
Bankareikningur: 0140-26-025522
IBAN: IS810140260255222512794979
SWIFT: NBIIISRE

Nútíminn hvetur alla þá sem vettlingi geta valdið að standa við bakið á Davíði Leó og fjölskyldunni hans. Baráttuhugur hans og jákvæðni er okkur hinum hvatning.
Auglýsing

læk

Instagram