Egill hjólar í ríkið vegna máls frænku sinnar: „Þið drulluðuð á ykkur — græið þetta!“

Fanney Björk Ásbjörnsdóttir, sem býr í Vestmannaeyjum, smitaðist af lifrarbólgu C við blóðgjöf á sjúkrahúsinu þar eftir barnsburð árið 1983. Fjallað var um mál hennar í fréttum Sjónvarpsins í gær.

Sjúkdómurinn var ekki greindur fyrr en hátt í 30 árum eftir blóðgjöfina. Hún stendur nú í málaferlum við ríkið, því hún fær ekki nýtilkomin lyf sem rannsóknir benda til að geti læknað langt yfir 90% sjúklinga á tólf vikum.

Meðferðin kostar hátt í tíu milljónir króna.

Egill Einarsson, frændi hennar, gagnrýnir ríkið á Facebook-síðu sinni.

„Það eru til lyf sem geta græjað þetta í 12 vikna meðferð. Lyf sem kosta 7-10 milljónir. En íslenska ríkið segir að það sé ekki til peningur. […] Mig langar að hafa frænku mína hjá mér lengur! Girða sig!“ segir hann.

Þetta er ekki flókið. Þið drulluðuð á ykkur — græið þetta! Meðferðin kostar ekki milljarð, þetta er 7-10 milljónir. Maður hefði haldið að þeir hefðu komið hlaupandi með þessu nýju lyf eftir að hafa gert þessi mistök, en neinei, halda áfram að vera með allt niðrum sig.

Auglýsing

læk

Instagram